Innlent

Oddvitaáskorunin - Betri og meiri Reykjanesbæ

Kristinn Þór með Sigmundi Davíð, Jóhönnu Maríu (dóttir sinni) og Söndru Rún á opnun kosningaskrifstofu Framsóknar í Reykjanesbæ.
Kristinn Þór með Sigmundi Davíð, Jóhönnu Maríu (dóttir sinni) og Söndru Rún á opnun kosningaskrifstofu Framsóknar í Reykjanesbæ.

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Kristinn Þór Jakobsson leiðir lista framsóknarmanna í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Konan mín sem ég á þrjú hæfileikarík börn með talar oft um „fyrir og eftir Kristinn“ til að aðgreina tímabil í lífi okkar. „Fyrir Kristinn“, lærði ég frönsku, matreiðslu og varð meistari, réð mig við að kenna evrópska matargerð í frumskógum Nepals. Vann á fjallahóteli í Noregi. Rak refabú í samstarfi við föður minn. Flokkaði skinn á uppboðshúsi í London var kallaður Diddi og Kiddi.

Rétt fyrir þrítugt gáfu systur mína mér Handbók piparsveinsins og stuttu seinna rann upp tímabilið „eftir Kristinn“. Eftir það er ég kallaður Kristinn, fór og lærði viðskiptafræði, eignaðist þrjú börn og á núna eitt barnabarn, spila golf og fer með frúnni í fjallgöngur. Fór að taka þátt í stjórnmálum og er í annað sinn kominn í framboð og nú með dóttir minni.

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Í björtu veðri og góðu útsýni er Reykjanesið allt fallegt. En einn fallegasti staðurinn finns mér vera útsýnið þegar keyrt er til Reykjavíkur og staldrað við þegar horft er niður í Kúagerði og fjallahringurinn allt frá Snæfellsjökli í Stapafell. Þar sést í Skjalbreið og Langjökul, Esjuna og Akrafjall Bogarfjarðarfjöllin og Snæfellsnesfjallgarðinn, það er leitun að öðru eins útsýni.

Hundar eða kettir?

Hvorugt, rækta garðinn minn fyrir smáfugla.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Núið.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Lambalæri með alles og góð nautasteik.

Hvernig bíl ekur þú?

Toyotu Avensis 2002.

Besta minningin?

Að dveljast í sveit sem unglingur í sauðburð, heyskap og sumri.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Já, flýtti mér aðeins of mikið.

Hverju sérðu mest eftir?

Að hafa flýtt mér aðeins of mikið.

Draumaferðalagið?

Ég upplifð eitt draumaferðalag í fyrrasumar. Sigling frá Norðurfirði á Ströndum og norður til Hornvíkur (fyrir Hníf og Gaffal) með viðkomu í Reykjafirði. Frábær sigling á spegilsléttum sjó í glampandi sól allan daginn.



Hefur þú migið í saltan sjó?

Já oft,  enda karlmenni mikið.



Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Taka þátt í trúarhátíð hindúa í Nepölskum frumskógi.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já oft, við lærum best af þeim.

Hverju ertu stoltastur af?

Öllum börnum mínum þremur. Þau eru hvert öðru betri einstaklingar og snillingar.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].

Kristinn með Ólöfu konu sinni og Kolbrúnu Marlesdóttur sem skipar 6. sæti listans, í mæðradagsgöngu í Reykjanesbæ

Tengdar fréttir

Oddvitaáskorunin - Lífið er pólitík

Bjarki Bjarnason, sem leiðir lista Vinstri grænna í Mosfellsbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor tók þátt í Oddvitaáskorun Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×