Innlent

Oddvitaáskorunin - Höldum stöðugleikanum

Golfið er uppáhalds tómstundin, enda þrír frábærir golfvellir í Garðabæ.
Golfið er uppáhalds tómstundin, enda þrír frábærir golfvellir í Garðabæ.

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Gunnar Einnarsson leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæí sveitarstjórnarkosningunum í haust.

Gunnar er með doktorspróf í stjórnun Menntastofnana frá Reading University. Hefur verið bæjarstjóri Garðabæjar síðastliðin 9 ár, þar áður forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs bæjarins í 10 ár. Fyrrverandi atvinnumaður í handknattleik og þjálfaði meistaraflokk Stjörnunnar í 10 ár. Stundakennari í meistaranámi í Opinberri Stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Giftur Sigríði Dísu Gunnarsdóttur náms- og starfsráðgjafa og lögfræðinema og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn.

Áherslur Gunnars eru aðallega að skapa góð uppvaxtarskilyrði barna og ungmenna t.d.  í íþrótta- og tómstundastarfi og skólamálum. Jafnframt traust og ábyrg fjármálastjórn.

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staður á Íslandi?

Þingvellir.

Hundar eða kettir?

Ég átti hund sem dó og ég sakna hans rosalega.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Þegar börn og barnabörn fæðast.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Það sem við hjónin eldum saman.

Hvernig bíl ekur þú?

Land Cruiser, 8 ára gamall.

Besta minningin?

Þegar ég varð ástfanginn.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Já fyrir of hraðan akstur.

Hverju sérðu mest eftir?

Að hafa lagt einstakling í einelti þegar ég var unglingur.



Draumaferðalagið?

Ferð til Napa.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Já.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Farið á dáleiðslunámskeið.

Bíbí er vön því að afi sé bæjarstjóri og vill engar breytingar þar á.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já oft.

Hverju ertu stoltastur af?

Fjölskyldunni.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×