Innlent

Oddvitaáskorunin - Vilja samtal milli íbúa og bæjarfulltrúa

Samúel Karl Ólason skrifar
Hér er selfie með mér og stuðningsmönnum, sonum mínum Freyr og Hrafni.
Hér er selfie með mér og stuðningsmönnum, sonum mínum Freyr og Hrafni.

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Viðar Helgason leiðir lista Bjartrar framtíðar í Árborg í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Fyrir rúmum sjö árum fórum við hjónin, þá búsett í Reykjavík, í bíltúr á Stokkseyri. Eftir ferð í sundlaugina á staðnum, þar sem okkur var boðið kaffi í heita pottinn og guðdómlega humarsúpu á Fjöruborðinu var okkur ekki  til setunnar boðið. Nokkrum mánuðum síðar höfðum við fest kaup á húsi við sjóinn og hér erum við alsæl, enda Árborg frábært sveitarfélag og hér eru endalausir möguleikar.

Ég er húsasmiður að mennt og var í atvinnurekstri því tengdu í mörg ár. Ég hef einnig starfað sem sjómaður, við húsamálun en síðastliðin ár hef ég starfað sem fjallaleiðsögumaður.

Ég er vel giftur og á fimm börn á aldrinum 3 – 24 ára, ásamt því að eiga fjögurra ára barnabarn. Ég er svo lánsamur að fá greitt fyrir að stunda helsta áhugamál mitt, sem er fjallamennska og útivist. Frítíma mínum eyði ég með fjölskyldunni minni og gjarnan í ferðalögum innanlands, en við erum miklir náttúruunnendur.

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Hornstrandir en þaðan er ég ættaður.

Hundar eða kettir?

Hundar

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Fæðing barnanna minna fimm og brúðkaupsdagurinn minn 5. júlí 2008.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Nautakjöt úr Holti í Flóa er á toppnum.

Hvernig bíl ekur þú?

Skoda Octavia.

Besta minningin?

Þær eru margar en Hornstrandarferð með pabba gamla árið 1992 er ofarlega.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Já – hef dregið úr hraðanum síðan þá.

Hverju sérðu mest eftir?

Eftirsjá er tímasóun.

Draumaferðalagið?

Aftur í Hornstrandarferð með ástinni minni.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Já margoft!

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Setið klæðalítill fyrir á dagatali hjá Ungmennafélagi Stokkseyrar.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já, geri það reglulega.

Hverju ertu stoltastur af?

Börnunum mínum.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×