Menning

Anita Briem leikur í Fólkið í blokkinni

Leikkonan Aníta Briem er meðal leikara í sjónvarpsþáttaröðinni Fólkið í blokkinni sem verða sýndir á Ríkissjónvarpinu í haust. nordicphotos/getty
Leikkonan Aníta Briem er meðal leikara í sjónvarpsþáttaröðinni Fólkið í blokkinni sem verða sýndir á Ríkissjónvarpinu í haust. nordicphotos/getty
„Við erum góðir kunningjar og hún var í raun að bíða eftir því að ég færi að gera eitthvað almennilegt sem hún gæti leikið í,“ segir leikstjórinn Kristófer Dignus en leikkonan Anita Briem fer með hlutverk í sjónvarpsþáttum hans, Fólkið í blokkinni.

Tökur á þáttunum hefjast í lok maí en Kristófer lauk nýverið við að ráða í helstu hlutverk. Æfingar hófust í vikunni en Kristófer sér bæði um leikstjórn og handritaskrif. Þættirnir eru byggðir á samnefndum smásögum Ólafs Hauks Símonarsonar. Sjö ár eru síðan Aníta lék síðast á Íslandi í myndinni Köld slóð.

„Það er skemmtileg viðbót við leikarahópinn að fá Anítu til liðs við okkur en mér skilst að hún ætli sér að nýta ferðlagið hingað til lands í tökur sem frí í leiðinni,“ segir Kristófer en Aníta er búsett í Los Angeles þar sem hún starfar sem leikkona og því ekki mætt til æfinga. „Mér skilst að þetta verkefni hafi smellpassað inn í stundaskrána hennar en hún fer svo beint í tökur til Ástralíu eftir að þessu lýkur. Það hafa verið aðeins öðruvísi samskiptin við hana en aðra leikara þar sem allt fer í gegnum umboðsmenn.“

Aðrir leikarar í þáttunum, sem verða frumsýndir á Ríkissjónvarpinu í haust, eru ekki af verri endanum. Gunnar Hansson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, María Heba Þorkelsdóttir, Hilmar Guðjónsson og Anna Gunndís Guðjónsdóttir fara með hlutverk. Aðalhlutverkin sjálf eru hins vegar í höndunum á ungum og óreyndum krökkum. Fyrr á árinu hélt Kristófer og framleiðslufyrirtækið Pegasus áheyrnaprufu þar sem hátt í 600 krakkar freistuðu gæfunnar. „Það er mikið af flottum leikurum sem koma að þessum þáttum og ég er ótrúlega ánægður með krakkana sem urðu fyrir valinu, en þeir eru í burðarhlutverkum og flestir að stíga sín fyrstu skref í þessum geira.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×