Harmageddon

Sannleikurinn: Jón Baldvin fékk Emmy verðlaunin fyrir bestan leik karlmanns í fórnarlambshlutverki

Andri Þór Sturluson skrifar
Bestur í fórnarlambshlutverki
Bestur í fórnarlambshlutverki
Glæpaþáttaröðin Gillz málið var valin besta dramaþáttaröðin á fréttamiðlunum á Emmy-verðlaunahátíðinni í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem þáttur framleiddur af DV fær Emmy verðlaun sem besta dramaþáttaröðin.

Nútímafjölskylda, Modern Framsóknarflokkurinn, þóttu hins vegar bestu gamanþættirnir. 



Þá var Jón Baldvin talinn standa sig best karla í alvarlegu fórnarlambshlutverki, í Bréf til barns, og Vigdís Hauksdóttir best kvenna í alvarlegu aðalhlutverki, í Ættjörð eða Homeland. 

Reynir Traustason, ritstjóri DV, fékk síðan Emmy-verðlaun fyrir bestu leikstjórn, en hann leikstýrir öllum helstu hneykslunarmálum fréttamiðlanna. 





Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og ekkert mál er of stórt eða of lítið. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu  en hún er aðeins fyrir sígraða satyríkona.



×