Lífið

Við vitum aldrei hve lengi við höfum hvert annað

Marín Manda skrifar
Olga Björt Þórðardóttir.
Olga Björt Þórðardóttir.
Olga Björt Þórðardóttir hefur stofnað sprotaverkefnið Minningasmiðjuna fyrir alla sem vilja varðveita fallegar og skemmtilegar stundir.

Tók fyrsta viðtalið við ömmu

"Ég tók fyrsta viðtalið við ömmu mína þegar ég var 11 ára. Síðan þá hef ég alltaf haft mikinn áhuga á fólki og ég sá möguleikann í því að gera miklu meira en bara að taka viðtöl við fólk. Það er svo heillandi að fólk hafi frá mörgu að segja frá ýmsum þroskastigum og ég hef áhuga á að greina kjarnann í viðfangsefninu svo sagan glatist ekki," segir Olga Björt, sem nú hefur komið sprotaverkefninu Minningasmiðjan á laggirnar. Olga Björt hefur fína reynslu af viðtölum og skrásetningu gagna, en hún er með BA-gráðu í íslensku og meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku. Hún segist hafa fengið hugmyndina að verkefninu eftir að hún varð móðir og  foreldrar hennar fóru að eldast.



Eitt það dýrmætasta sem við eigum

"Við vitum aldrei hve lengi við höfum hvert annað en upptökur eru eitt af því dýrmætasta sem við eigum þegar manneskja fellur frá." Minningasmiðjan felur í sér þá þjónustu að auðvelda fólki að varðveita viðburði og minningar af ýmsu tagi en Olga Björt tekur einlæg viðtöl og skrásetur og vinnur á endanlegt form eftir óskum hvers og eins. Um er að ræða viðburðamyndbönd, viðtöl við verðandi brúðhjón, viðtöl við nánasta fólk einhvers sem á stórafmæli, við ömmu og afa eða viðtöl við börn. Olga Björt segir að eðlilega þurfi fólk að melta það að til sé svona þjónusta en þetta sé í leiðinni hvatning til þess að tala meira hvert við annað og taka upp á myndband.

"Fólk má ekki fresta því að taka svona ákvarðanir. Viskan kemur ekki bara frá gamla fólkinu því við erum öll með einhvers konar visku á ýmsu þroskastigi. Unglingur hefur til dæmis vissa sýn á lífið eins og hann upplifir sig þá stundina og það er bara skemmtilegt."

Hægt er að hafa samband við Minningasmiðjuna í gegnum [email protected] eða í gegnum vefsíðuna www.olgabjort.com.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×