Menning

Styrktartónleikar fyrir Ingólf ljósmyndara

Ingólfur greindist með bráðahvítblæði í október.
Ingólfur greindist með bráðahvítblæði í október. Mynd/[email protected]
Tónleikar til styrktar Ingólfi Júlíussyni ljósmyndara og margmiðlunarhönnuði verða haldnir í Norðurljósum í Hörpu þann 28. febrúar.

Ingólfur greindist með bráðahvítblæði (acute myelogenous leukemia) í októberbyrjun síðasta árs og hefur dvalið á sjúkrahúsi að mestu síðan. Hafa veikindin höggvið mjög nærri heimilisins, en Ingólfur er fjölskyldumaður.

Allir sem koma fram á tónleikunum gefa vinnu sína og þeirra á meðal eru grínistinn Ari Eldjárn, söngvaskáldið Hörður Torfason, auk hljómsveita og listamanna á borð við Dimmu, KK og Q4U, en Ingólfur hefur lengstum verið gítarleikari þeirrar sveitar.

Aðgangseyrir er kr. 2.500 og rennur beint til Ingólfs og fjölskyldu hans.

Miðasala á tónleikana er í Hörpu og á midi.is. Síminn í miðasölu Hörpu er 528 5050.

Þeim sem ekki komast á tónleikana en vilja styrkja Ingólf og fjölskyldu er velkomið að leggja inn á eftirfarandi bankareikning:

Banki: 0319 Hb 26. Reikningsnúmer 002052. Kennitala: 190671-2249.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×