Lífið

Hollywood bregst við harmleiknum

Hin hörmulega skotárás á Sandy Hook-grunnskólann í Newport, Connecticut í síðustu viku hefur valdið ómældri reiði og sorg um allan heim. Alls liggja 27 manns í valnum eftir hinn tvítuga árásarmann, þar af tuttugu börn, ýmist sex eða sjö ára gömul.



Skemmtanaiðnaðurinn vestanhafs þykir þó, að sumra mati, ganga ansi langt í að hafa vaðið fyrir neðan sig, og bæði kvikmyndir og sjónvarpsþættir læðast með veggjum þessa fyrstu daga eftir harmleikinn.



Dæmi um þetta er nýjasta kvikmynd leikstjórans Quentins Tarantino, Django Unchained, en hún verður frumsýnd í Los Angeles í kvöld, og hafa framleiðendur myndarinnar aflýst húllumhæinu í kringum sýninguna. Rauða teppinu verður ekki rúllað út og blaðamönnum meinaður aðgangur.



„Þetta snýst ekki um ofbeldið í myndinni, heldur það að enginn er í skapi til þess að fagna," segir talsmaður TWC, framleiðslufyrirtækis myndarinnar, en Tarantino sjálfur segir það fásinnu að kenna ofbeldi í kvikmyndum um raunveruleg voðaverk.



Paramount-samsteypan brást einnig snöggt við og breytti kynningarefni sínu fyrir Tom Cruise-myndina Jack Reacher, en í stiklunni var áður mikil kúlnahríð. Sjálfri myndinni verður hins vegar ekki breytt að neinu leyti.



Sjónvarpsstöðin ABC kippti síðasta þætti seríunnar Scandal af vefsíðu sinni um helgina, en þátturinn inniheldur óhuggulegt atriði þar sem heil fjölskylda er myrt. Þátturinn var kominn aftur á vefinn á mánudagsmorgunn.



Þá hefur Discovery-sjónvarpsstöðin tekið þættina American Guns endanlega af dagskrá, en ekki hefur komið fram hvort ákvörðunin tengist skotárásinni.



Teiknimyndaþættirnir American Dad og Family Guy voru ekki á sínum stað á Fox-rásinni um helgina. American Dad-þátturinn innihélt notkun skotvopna en hæðst var að trúarbrögðum í Family Guy-þættinum, og þótti forsvarsmönnum stöðvarinnar það óviðeigandi í ljósi atburðanna.



Raunveruleikaþátturinn The Voice var á sínum stað í dagskrá NBC, en þáttur helgarinnar hófst á flutningi Leonard Cohen-slagarans Hallelujah, þar sem söngvarar þáttarins héldu á spjöldum með nöfnum fórnarlambanna.



[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×