Samsamaði sig sjóræningjum [email protected] skrifar 22. nóvember 2012 06:00 „
Þetta er sjálfstætt framhald Indjánans. Sjóræninginn segir frá Hlemmsárunum mínum, þegar ég er á aldrinum þrettán til fimmtán ára. Í stórum dráttum segir bókin frá því þegar ég lýk barnaskóla og fer í Réttarholtsskóla. Þar varð ég fyrir miklu einelti og lenti í ákveðnum erfiðleikum, svo kynnist ég pönkinu og fer að hanga á Hlemmi," segir Jón Gnarr borgarstjóri um nýútkomna bók sína, Sjóræningjann. Bókin er skálduð ævisaga líkt og fyrri bók Jóns, Indjáninn. Jón hóf að semja Sjóræningjann stuttu eftir að hann lauk við þá fyrri, en ákvað að bíða með útgáfu bókarinnar þar til nú. „Ég vildi ekki gefa hana út strax því ég var ekki tilbúinn til þess. Í fyrra þótti mér tíminn kominn og ég settist niður og las bókina yfir og fíniseraði hana. Mér fannst mikilvægt að koma henni út, það skiptir svo miklu máli fyrir þá sem eru í líkum aðstæðum og ég var, að fá sögu einhvers sem hefur farið í gegnum það sama. Það virkar sem hvatning og veitir samhug. Á sama tíma var þetta þerapía fyrir mig og ég uppgötvaði margt í sambandi við mitt líf, og lífið almennt, við að skrifin. Bókin fékk mig til að skilja betur hver ég er og úr hverju ég er." Jón var mjög heillaður af indjánum og sjóræningjum sem barn og þaðan eru titlar bókanna fengnir. Hann leit á sjóræningja sem utangarðsfólk síns tíma og samsamaði sig þeim. „Ég var alltaf mjög heillaður af menningarsamfélögum sem ég upplifði sem frjáls samfélög. Fyrir mér var indjáni manneskja sem lifði frjáls í sátt og samlyndi við náttúruna. Þegar ég varð unglingur yfirfærðist þessi áhugi minn svolítið yfir á sjóræningja. Sjóræningjar voru gjarnan fólk sem hafði orðið undir í samfélaginu og komist í kast við lögin og varð því að flýja hið hefðbundna samfélag. Mér fannst þetta góður titill á bókina því á þessum tíma var ég að flýja skólakerfið og þá erfiðleika sem ég gekk í gegnum þar. Hlemmur var minn sjóræningjavettvangur." Sjóræninginn er önnur bókin í þríleik og mun þriðja og síðasta bókin fjalla um tímann sem Jón eyddi á heimavistarskóla á Núpi í Dýrafirði. Inntur eftir því hvort hann hafi nokkurn tíma í aflögu fyrir fjölskyldu sína á milli þess sem hann sinnir embætti borgarstjóra og listagyðjunni, svarar Jón neitandi. „Líf mitt er þannig að ég á ekkert líf," segir hann og hlær. „Ég er með standandi dagskrá alltaf. Í sumar, þegar ég ætlaði að eyða sumarfríinu mínu hjá systur minni í Noregi, þá lýsti Morgunblaðið eftir mér, eins og frægt er orðið. Þannig að ég á aldrei frí."
Lífið Menning Tengdar fréttir Útpældur bókatitill Frosti Gnarr, sonur Jóns, hannar bókarkápu Sjóræningjans, en á henni má sjá mynd af húðflúri sem Jón fékk sér nítján ára gamall. 22. nóvember 2012 06:00 Mest lesið Skotheldar hugmyndir að góðri hlustun Lífið Bjarki og Rósa orðin hjón Lífið Fer ekki út úr húsi eftir greininguna Lífið Sigríður Margrét orðin amma Lífið Hjónabönd 50+: „Ekki gott ef gremjubankinn stækkar og stækkar“ Áskorun Hversdagslegir hlutir urðu óyfirstíganlegir Lífið Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Lífið Fleiri fréttir Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira
Útpældur bókatitill Frosti Gnarr, sonur Jóns, hannar bókarkápu Sjóræningjans, en á henni má sjá mynd af húðflúri sem Jón fékk sér nítján ára gamall. 22. nóvember 2012 06:00