Gögn hækka bætur til þolenda ofbeldis [email protected] skrifar 22. nóvember 2012 06:00 Svala Ísfeld Ólafsdóttir
Sérfræðigögn í kynferðisbrotamálum gegn börnum virðast skipta sköpum fyrir rétti þegar kemur að því að dæma fórnarlömbum ofbeldisins bætur. Alla jafna eru bætur hærri í dómum þar sem sérfræðigögn eru lögð fram í málinu; eins og umsagnir um líðan þolanda frá sálfræðingum, geðlæknum, sjúkrahúsum, lögreglu og fleiri aðilum, samkvæmt rannsókn síðan í ár. Rannsóknin nær til allra kynferðisbrotadóma gegn börnum á tímabilinu 2002 til febrúar 2012 þar sem sakborningur var sakfelldur. Dómarnir eru sjötíu talsins og þolendurnir 126. Verkefnið er hluti af BA-ritgerð Snædísar Óskar Sigurjónsdóttur við Háskólann í Reykjavík (HR). Í 63% málanna var bótakrafa studd með sérfræðigögnum. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR, fjallaði um rannsóknina í grein sinni „Áhrif sérfræðigagna á fjárhæð miskabóta til þolenda kynferðisbrota í æsku". Þar segir að allir brotaþolarnir hafi gert kröfu um miskabætur og fengu þeir allir dæmdar bætur. Langalgengast er að Hæstiréttur fallist á minna en helming, eða á bilinu 21 til 40%, þeirrar upphæðar bótakröfu sem farið er fram á fyrir dómi. Þá sýnir rannsókn Snædísar fram á að eftir því sem fleiri sérfræðigögn eru lögð fram í málinu, þeim mun meiri líkur eru á að upphæð miskabóta verði hærri. Einnig kom í ljós að eftir því sem brotin eru alvarlegri, þeim mun algengara er að sérfræðigögn fylgi með. Svala segir í niðurstöðukafla greinar sinnar að þessi niðurstaða ætti að verða réttargæslumönnum brotaþola í kynferðisbrotamálum veruleg hvatning til að vanda til verka við undirbúning og rökstuðning slíkrar kröfu.
Fréttir Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Fleiri fréttir Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Sjá meira