Innlent

Börnin á Barðaströnd í kennslu frá Bíldudal

Fjarkennsla Lilja Rut Rúnarsdóttir, sem kennir ensku og dönsku, leiðbeinir hér nokkrum nemendum Birkimelsskóla og getur haft með þeim auga á tölvuskjánum. Arnar Þór Arnarsson kennir svo börnunum samfélagsfræði.AÐSEND MYND
Fjarkennsla Lilja Rut Rúnarsdóttir, sem kennir ensku og dönsku, leiðbeinir hér nokkrum nemendum Birkimelsskóla og getur haft með þeim auga á tölvuskjánum. Arnar Þór Arnarsson kennir svo börnunum samfélagsfræði.AÐSEND MYND
„Þetta hefur gengið ljómandi vel. Nemendurnir eru duglegir og sitja og læra og rétta upp bækurnar til kennarans," segir Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skólastjóri Grunnskóla Vesturbyggðar. Brugðið hefur verið á það ráð að bjóða upp á fjarkennslu fyrir börn vegna fjarlægðar og fámennis. Fjarkennslan hófst nú í haust.

Grunnskóli Vesturbyggðar samanstendur af Patreksskóla á Patreksfirði, Bíldudalsskóla á Bíldudal og Birkimelsskóla á Birkimel á Barðaströnd. Aðeins níu nemendur eru í Birkimelsskóla og tuttugu í Bíldudalsskóla.

„Okkur vantaði fólk til þess að kenna, það er einn kennari í Birkimelsskóla," segir Nanna Sjöfn. Því varð úr að tveir kennarar á Bíldudal kenna nú börnunum á Barðaströnd í gegnum tölvur. „Það er kennd enska, danska og samfélagsfræði. Kennararnir sitja við tölvu og hafa þennan sérútbúnað og myndavél og þessu er varpað á stórt tjald í Birkimelsskóla svo allir sjái kennarann vel. Svo bara læra þau. Þetta er samkennsla og oft eru þau frá fjórða og upp í níunda bekk öll saman." Á meðan á þessum kennslustundum stendur fylgist kennarinn í Birkimelsskóla með eða gerir eitthvað annað.

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem grunnskólinn prófar fjarkennslu. „Við tókum á sínum tíma þátt í mjög stóru verkefni sem hét dreifmenntaverkefnið, sem byggði á þessu. Það var tilraunaverkefni með fjarkennslu í grunnskólum sem snerist um að nýta fagkennara. Þá prófuðum við ýmsar útfærslur og nokkrum mánuðum seinna kenndum við héðan úr Vesturbyggð yfir á Snæfellsnes. Við kenndum dönsku og eðlisfræði því þá vantaði kennara þar. Þetta snýst um að nýta fagkennara og nú nýti ég mjög góða kennara á Bíldudal yfir á Birkimel. Þetta hefur gefist mjög vel og getur verið góð lausn þegar vantar kennara í þessum litlu skólum."

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×