Lífið

Einstakt að fá að vinna með Sir Kenneth Branagh

Í tökum Magni Ágústsson kvikmyndatökustjóri vann við gerð þáttanna Spy sem sýndir eru í Sjónvarpinu. Mynd/árni Þór jónsson
Í tökum Magni Ágústsson kvikmyndatökustjóri vann við gerð þáttanna Spy sem sýndir eru í Sjónvarpinu. Mynd/árni Þór jónsson
Magni Ágústsson, kvikmyndatökustjóri og meðlimur í Félagi íslenskra kvikmyndatökustjóra, hefur starfað innan kvikmyndabransans í sautján ár. Hann er búsettur í London og vann meðal annars sem tökumaður við gerð sjónvarpsþáttanna Spy sem nú eru sýndir í Ríkisjónvarpinu.

„Ég byrjaði í bransanum fyrir sautján árum og vann mig hægt og rólega upp í starf kvikmyndatökustjóra. Þegar ég byrjaði vann ég við hin ýmsu störf á tökustað en þar sem ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun og kvikmyndatöku lá leiðin í þetta starf frekar en eitthvað annað," útskýrir Magni.

Spy eru gamanþættir sem voru framleiddir fyrir Sky-sjónvarpsstöðina og fara Darren Boyd og Robert Lindsay með aðalhlutverkin í þáttunum. Alls eru sex þættir í fyrstu þáttaröðinni og tók Magni þá alla upp.

„Þetta var mjög skemmtilegt verkefni, en afskaplega krefjandi. Önnur þáttaröð er í bígerð en ég var upptekinn og gat ekki tekið þátt í því verkefni," segir Magni.

Magni vann einnig við breska endurgerð sjónvarpsþáttanna um sænska lögreglumanninn Wallander. Sir Kenneth Branagh fer með hlutverk lögreglumannsins snjalla og um samstarfið segir Magni: „Það sem stendur upp úr er að hann er með svo háan gæðastuðul að ég hef sjaldan séð annað eins. Það er í raun stórmerkilegt hversu mikill fagmaður hann er í starfi."

Tökur á þáttunum fóru fram í Svíþjóð og dvaldi Magni þar í þrjá mánuði. Hann viðurkennir að mikið flakk fylgi starfinu og segir það bæði kost og galla. „Það getur verið skemmtilegt á köflum en líka dapurlegt, maður er endalaust að „tékka" sig inn á flugvöllum og á hótel.

En á sama tíma er gaman að sjá og kynnast stöðum sem maður mundi ef til vill ekki annars heimsækja," segir hann að lokum.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×