Menning

Fyndnari í fullri lengd

Sigríður Lára Sigurjónsdóttir tók sig til og þýddi Önnu í Grænuhlíð á nýjan leik eftir að hún komst að því að bókin hafði verið stytt verulega í íslenskri þýðingu á sínum tíma. Hér handleikur hún nýja útgáfu bókarinnar sem dreift var í verslanir í vikunni.
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir tók sig til og þýddi Önnu í Grænuhlíð á nýjan leik eftir að hún komst að því að bókin hafði verið stytt verulega í íslenskri þýðingu á sínum tíma. Hér handleikur hún nýja útgáfu bókarinnar sem dreift var í verslanir í vikunni. Fréttablaðið/Valli
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir komst að því fyrir nokkrum árum að íslensk þýðing einnar eftirlætisbókar hennar, Önnu í Grænuhlíð, væri stytt útgáfa sögunnar. Hún hefur nú þýtt á ný fyrstu bókina af átta um Önnu.

„Ég hef lengi verið aðdáandi Önnu í Grænuhlíð en það var fyrst árið 2009 að ég komst að því að bækurnar væri bæði fleiri en ég hélt og lengri. Ég byrjaði því á að lesa bækurnar sem ég hafði ekki lesið og svo þær sem höfðu verið þýddar á íslensku og komst að því að það var meira í þær spunnið en ég hélt.

Bækurnar um Önnu eru til dæmis miklu fyndnari en ég hafði gert mér grein fyrir,“ segir Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, þýðandi Önnu í Grænuhlíð sem komin er út á nýjan leik í óstyttri útgáfu hjá forlaginu Ástríki.

„Fyrstu fjórar bækurnar af þeim átta sem höfundurinn Lucy Maud Montgomery samdi um Önnu voru þýddar á árunum 1933 til 1937 af Axel Guðmundssyni. Gömlu þýðingarnar eru mjög góðar að mörgu leyti en þær voru þýddar inn í gömlu þýðingarhefðina sem fól í sér þá hugsun að ekki þyrfti að fara eftir frumtextanum.

Fyrsta bókin var til dæmis 27 kaflar á íslensku en 38 á ensku. Og styttingar þýddu líka að sögunni var breytt á köflum,“ segir Sigríður Lára og lofar því að lesendum sem þekkja bókina bara í íslenskri þýðingu verði komið á óvart í nýju þýðingunni.

Fyrsta bókin um Önnu í Grænuhlíð kom út árið 1908. Sögusviðið eru æskuslóðir höfundar, Prince Edwards-eyja sem er við austurströnd Kanada. „Þetta er sígild sveitarómantík en sögurnar eru alls ekki barnabækur eins og sumir halda.

Anna sjálf er bara barn í fyrstu bókinni og síðustu bækurnar segja frá börnunum hennar. Ég les þær að minnsta kosti enn mér til ánægju og veit að bækurnar eiga sér fjölmarga aðdáendur á öllum aldri.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×