Lífið

Hryllingsmynd Erlings vekur athygli

Ungur leikstjóri Erlingur hlaut áhorfendaverðlaunin á Columbia University Film Festival. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ungur leikstjóri Erlingur hlaut áhorfendaverðlaunin á Columbia University Film Festival. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Ég hef verið aðdáandi hryllingsmynda síðan ég var krakki," segir Erlingur Óttar Thoroddsen meistaranemi í kvikmyndaleikstjórn við Columbia-háskóla í New York. Stuttmynd hans Child Eater hefur hlotið nokkra athygli vestra þrátt fyrir að hafa einungis verið sýnd einu sinni.

„Þetta er hrollvekja í anda gömlu hryllingsmyndanna frá 1980, til dæmis Halloween-myndanna," segir Erlingur. Hann segir fáar slíkar myndir hafa verið gerðar á Íslandi. „Það er kannski helst Reykjavik Whale Watching Massacre og Morðsaga frá 1977, sem er svona fyrsta íslenska hryllingsmyndin." Í sömu mund segist hann gjarnan vilja koma af stað eða taka þátt í hryllingsmyndabylgju hér á landi.

„Myndin fjallar um barnfóstru sem vill eiga notalegt kvöld en krakkinn hættir ekki að kvarta yfir að það sé einhver inni í skápnum sínum. Eftir því sem líða fer á kvöldið fara undarlegir hlutir að gerast þar til allt fer til fjandans," segir Erlingur sem byrjaði að skrifa handritið í febrúar í fyrra.

Til að auka á hryllinginn var notuð frumsamin tónlist Einars Sverris Tryggvasonar. Myndin var sýnd á Columbia University Film Festival í virtu listamiðstöðinni Lincoln Center og hlaut áhorfendaverðlaun hátíðarinnar. „Við fengum strax mjög góðar viðtökur. Fulltrúar tveggja stórra kvikmyndahátíða komu til okkar eftir sýninguna og báðu um myndina.

Maður frá framleiðslufyrirtæki kom einnig til mín og sagðist vilja gera hryllingsmynd. Hann sýndi fyrirtækinu sínu myndina og við höfum verið í sambandi. Næst á dagskrá er að skrifa handrit að þessari mynd í fullri lengd," segir Erlingur vongóður um framhaldið.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×