Menning

Gera heimildarmynd um tónlistarsögu Suðurnesja

Fjallað verður um Of Monsters and Men og fleiri flytjendur í nýrri heimildarmynd sem Anton Ingi Sigurðsson leikstýrir. Rúnar Júlíusson kemur að sjálfsögðu einnig við sögu í myndinni.
Fjallað verður um Of Monsters and Men og fleiri flytjendur í nýrri heimildarmynd sem Anton Ingi Sigurðsson leikstýrir. Rúnar Júlíusson kemur að sjálfsögðu einnig við sögu í myndinni.
Heimildarmynd um tónlistarsögu Suðurnesja er í undirbúningi. Tökur hefjast á tónlistarhátíðinni Keflavík Music Festival á fimmtudaginn.

„Þegar ég frétti að það ætti að halda þessa hátíð ákvað ég að gera þetta. Ég var nýbúinn að gera stuttmynd sem gekk vel og mér fannst eins og það væri hægt að gera eitthvað „kúl“ úr þessu,“ segir leikstjórinn Anton Ingi Sigurðsson. Stuttmyndin heitir Grafir og bein og voru Hilmir Snær Guðnason og Margrét Vilhjálmsdóttir í aðalhlutverkum. Að sögn Antons Inga verður heimildarmyndin í fullri lengd. „Þetta er frekar stórt verkefni, enda um tónlistarsögu Suðurnesja. Það er úr hellingi að velja þar.“

Bítlabærinn Keflavík verður áberandi í myndinni og verður þar fjallað um goðsagnir á borð við Rúnar Júlíusson og Magnús Kjartansson. Einnig koma við sögu hljómsveitirnar Of Monsters and Men, sem kemur að hluta til úr Garði, og Klassart úr Sandgerði.

Á Keflavík Music Festival verður svo fylgt eftir flytjendum borð við Retro Stefson, Lay Low og Sykri. Með Antoni Inga koma að myndinni framleiðendurnir Erlingur Jack Guðmundsson, Garðar Örn Arnarson og þeir Ólafur Geir Jónsson og Pálmi Þór Erlingsson sem skipuleggja Keflavík Music Festival. Til stendur að frumsýna myndina á Ljósanótt í Reykjanesbæ í haust og sýna hana víðar í framhaldinu. Útgáfa á mynddiski er einnig fyrirhuguð.

Keflavík Music Festival verður haldin í fyrsta sinn 7. til 10. júní. Hátíðin fer fram á helstu skemmtistöðum Reykjanesbæjar og hefst hún á tónleikum á Ránni með hljómsveitunum Valdimar og Klassart. Um eitt hundrað flytjendur koma fram á hátíðinni.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×