Viðskipti innlent

Erlendir og innlendir vilja Magma-bréf

Útrunnið Alterra, sem áður hét Magma, var með sérleyfi á því að kaupa skuldabréfið. Það rann út í febrúar og var ekki endurnýjað. Ross Beaty er stjórnarformaður Alterra og Ásgeir Margeirsson er einn aðstoðarforstjóra félagsins.fréttablaðið/gva
Útrunnið Alterra, sem áður hét Magma, var með sérleyfi á því að kaupa skuldabréfið. Það rann út í febrúar og var ekki endurnýjað. Ross Beaty er stjórnarformaður Alterra og Ásgeir Margeirsson er einn aðstoðarforstjóra félagsins.fréttablaðið/gva
Einn erlendur aðili og nokkrir innlendir aðilar, að mestu leyti lífeyrissjóðir, eru á meðal þeirra sem nú skoða að kaupa svokallað Magma-skuldabréf af Reykjanesbæ, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Niðurstaða í málinu gæti legið fyrir á allra næstu vikum.

Alterra, sem áður hét Magma, undirritaði viljayfirlýsingu um að kaupa bréfið, sem félagið gaf sjálft út, 8. september í fyrra og fékk 160 daga til að ganga frá því. Sérleyfi Alterra á kaupunum samkvæmt viljayfirlýsingunni rann út um miðjan febrúar og var ekki endurnýjað.

Reykjanesbær eignaðist umrætt skuldabréf þegar hann seldi Geysi Green Energy hlut sinn í HS Orku sumarið 2009 og það er langstærsta seljanlega eign sveitarfélagsins. Bókfært virði þess samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2011 var 5,9 milljarðar króna um síðustu áramót. Það er á gjalddaga 2016 og afborganir á því eru litlar fram að þeim tíma. Skuldabréfið ber 3,5% vexti, höfuðstóll þess er verðtryggður og bundinn við vísitölu álvers. Í ársreikningnum segir að „ef skuldabréfið er framreiknað miðað við álverð í árslok 2011 væri höfuðstóllinn 7.906,8 milljónir króna sem væri með núvirðingu 7.370,9 milljónir króna en vegna varúðarsjónarmiða hefur sú hækkun ekki verið færð".

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, staðfestir að bæjarstjórnin hafi leitað til nokkurra fjármálafyrirtækja með það fyrir augum að selja bréfið öðrum en Alterra eftir að sérleyfi þeirra rann út.

Á meðal þeirra eru Íslandsbanki og Virðing.

Hann segir bæjarstjórnina vera að ræða ýmsar leiðir í málinu. „Það eru aðilar áhugasamir um kaup á bréfinu. Það eru ýmsar leiðir í því. Það eru allir mjög bjartsýnir á að þetta sé mjög gott bréf. Það eru nokkrir aðilar að skoða sölu á því fyrir okkur."

Ásgeir Margeirsson, einn aðstoðarforstjóra Alterra, segir félagið ekki útiloka að kaupa bréfið þó að sérleyfi þess á þeim kaupum hafi runnið út. Ef viðeigandi lausn finnist þá geti kaupin enn gengið eftir.

Reykjanesbær er í ábyrgð fyrir gríðarlegum skuldum Reykjaneshafnar.

Í endurskipulagningu á skuldum hafnarinnar í fyrra skuldbatt Reykjanesbær sig til að hlíta nokkrum skilmálum sem tilgreindir eru í ársreikningi bæjarins. Á meðal þess sem þar kemur fram er að „ef Reykjanesbær selur, eða veðsetur eignarhlut sinn í HS Veitum hf. og/eða fær greitt af skuldabréfi útgefnu af Magma Energy Sweden A.B. þá fær Reykjaneshöfn 25% af þeim fjárhæðum í formi víkjandi láns frá Reykjanesbæ".

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×