Innlent

Lögregla gagnrýnir innanríkisráðherra - fréttaskýring

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson


Hversu langt eiga stjórnvöld að ganga til að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi?

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ekki trú á því að lagalegt bann við starfsemi alþjóðlegra glæpasamtaka hér á landi skili nokkru. Hann lagði fram frumvarp í síðustu viku þar sem nýtt ákvæði bætist í lög um meðferð sakamála sem kveður á um að lögreglu sé heimilt að hefja rannsókn ef grunur vaknar um að menn ætli sér að fremja brot sem varðar fjögurra ára fangelsi og að brotið sé liður í skipulagðri glæpastarfsemi. Frumvarpið gengur allt of skammt að mati lögreglu, sem hefur kallað eftir sams konar heimildum og lögregluliðið í nágrannalöndunum hefur til að rannsaka starfsemi skipulagðra glæpagengja.

Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknarflokks, gagnrýnir framgang Ögmundar í málinu. Hún segir brýnt að láta banna þau vélhjólasamtök sem uppfylla skilyrði alþjóðlegra glæpasamtaka, félagafrelsi víki í slíkum tilfellum. Siv hefur flutt málið tvívegis fyrir þinginu ásamt sjö þingmönnum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar, þar sem mælst er til þess að lögreglan fái sömu heimildir til rannsókna og á hinum Norðurlöndunum. Málið liggur nú á borði allsherjar- og menntamálanefndar þar sem Siv á sæti og segir hún alla umsagnaraðila málsins jákvæða. „Þetta er velferðarmál er varðar almannaheill," segir Siv. „Við viljum búa í öruggu samfélagi."

Í tillögunni er ályktað að fela innanríkisráðherra að leggja fram frumvarp fyrir Alþingi sem veiti íslensku lögreglunni sambærilegar heimildir og í öðrum norrænum ríkjum til að rannsaka og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

Í október árið 2009 lét Ragna Árnadóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, kanna hvort setja ætti lög sem heimila stjórnvöldum að banna ákveðin félög. Var þetta gert til að bregðast við vaxandi hörku í afbrotum hér á landi og hættunni sem fylgir því að erlend glæpasamtök hasli sér hér völl.

„Það, að menn sammælist um að fremja glæpi, hvort sem það er í samtökum eða utan þeirra, er alvarlegt mál og á ekki að líðast á Íslandi," sagði Ragna í samtali við Fréttablaðið árið 2009. Forgangsverkefni sé að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×