Lífið

Bístró-veitingastaðir njóta vaxandi vinsælda

Steinn Óskar Sigurðsson, matreiðslumeistari, segir enga tilviljun ráða því að bístró veitingastaðir njóta vinsælda um þessar mundir.
Steinn Óskar Sigurðsson, matreiðslumeistari, segir enga tilviljun ráða því að bístró veitingastaðir njóta vinsælda um þessar mundir. fréttablaðið/gva
Bístró veitingastaðir hafa lengi notið vinsælda í stórborgum eins og London, New York og París og hafa vinsældirnar nú náð hingað til lands. Veitingastaðurinn Snaps var opnaður fyrir stuttu og innan skamms bætist Silfurtunglið í stækkandi hóp bístró veitingastaða.

„Þetta er engin tilviljun heldur bundið tíðarandanum. Svokallaðir „fine dining" staðir eru á undanhaldi og landinn sækist nú frekar eftir ódýrari stöðum sem bjóða upp á létta rétti og meiri stemningu. Samfélagið stýrir þessu," útskýrir Steinn Óskar Sigurðsson, yfirmatreiðslumaður og rekstrarstjóri Silfurtunglsins, þegar hann er spurður út í þessa þróun.

Fréttablaðið greindi nýverið frá opnun veitingastaðarins Snaps á Óðinstorgi þar sem áður var Brauðbær. Þar verður meðal annars boðið upp á snafsa, smurbrauð og klassískan bistrómat. Áður mátti finna bístró veitingastaðina Geysi og Nauthól og því augljóst að bístrómatur falli Íslendingum í skap.

Veitinga- og skemmtistaðurinn Silfurtunglið var starfrækur frá 1955 til 1975 á efri hæð leikhússins Austurbæjar og hyggst Steinn Óskar endurvekja staðinn en á sinn sérstaka hátt.

„Matseðillinn verðu fjölbreyttur og við munum blanda saman mörgum ólíkum stílum. Ég ætla meðal annars bjóða upp á gamla klassíska rétti af gömlum matseðli Silfurtunglsins í bland við góða kjöt- og fiskrétti í nýnorrænum stíl og skyndibita sem ég mun framreiða á minn persónulega hátt."

Steinn Óskar leggur mikið upp úr því að halda í þá stemningu er ríkti á gamla Silfurtunglinu. „Það er mikil sál í húsinu og við höfum lagt mikla vinnu í að hafa uppi á gömlum matseðlum, myndum og öðru efni sem tengist staðnum og ætlum meðal annars að bjóða upp á kokteila sem bornir voru fram á gamla Silfurtunglinu," segir Steinn Óskar sem kveðst sækja innblástur til bístró veitingastaða í London, New York og Kaupmannahöfn þar sem slíkir veitingastaðir hafa lengi notið vinsælda.

Silfurtunglið mun opna í Austurbæ í lok mars.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×