Innlent

Borgin hjálpi skátum að kaupa Úlfljótsvatn

Skátasamband Reykjavíkur óskar eftir því að Reykjavíkurborg greiði fimm milljónir króna á ári næstu sex árin vegna láns sem sambandið fékk hjá Skógræktarfélagi Íslands til að greiða hlut sambandsins í Úlfljótsvatni.

Bandalag íslenskra skáta (BÍS), Skátasamband Reykjavíkur (SSR) og Skógræktarfélag Íslands gengu í fyrra frá kaupum á Úlfljótsvatni. Kaupverðið var 200 milljónir króna. Af því greiddi Skógræktarfélagið 150 milljónir. SSR og BÍS áttu hvort um sig að borga 25 milljónir með lánum frá Skógræktarfélaginu.

Bragi Björnsson, skátahöfðingi á Íslandi, segir BÍS reyndar ekki hafa nýtt sér lánsboðið frá skógræktarmönnum heldur hafa greitt sinn hlut. SSR er hins vegar í erfiðari stöðu. Skátar hafa í sjötíu ár byggt upp mikla aðstöðu á Úlfljótsvatni sem Bragi lýsir einfaldlega sem Mekka íslenskra skáta. Hreyfingin hafði leigusamning við Orkuveituna til meira en sextíu ára.

Í bréfi til borgarstjórans í Reykjavík segir Anna Rós Sigmundsdóttir, formaður SSR, að Orkuveitan hafi sett tilvist skáta á Úlfljótsvatni í óvissu með því að setja jörðina í sölu.

„Vegna þrýstings frá OR þá ákváðu SSR, BÍS og Skógræktarfélag Íslands að gera kauptilboð í jörðina," segir í bréfi Önnu, sem lagt var fyrir borgarráð á fimmtudag. „Ljóst er að SSR á ekki fé til kaupanna en sér sig engu að síður knúið til kaupanna og til að tryggja aðstöðu skáta og almennings að Úlfljótsvatni."

Í umsögn Orkuveitunnar til borgarráðs segir að missagnir séu í lýsingu Önnu á aðdraganda sölunnar. Það hafi verið kaupendurnir sem hafi haft áhuga á viðskiptunum. Vitnað er í sameiginlega fréttatilkynningu að þeim loknum:

„Í ljósi margvíslegra kvaða sem á jörðinni hvíla var hún ekki talin meðal þeirra eigna sem Orkuveitan ætti möguleika á að selja." Borgarráð frestaði afgreiðslu málsins.

Aðspurður segir Bragi Björnsson það misskilning að Orkuveitan hafi beitt skátahreyfinguna þrýstingi. „En auðvitað vorum við óróleg þegar við vissum að Úlfljótsvatn væri komið á sölulistann hjá Orkuveitunni sem við höfum átt ákaflega farsælt samstarf við. Svo býðst þetta tækifæri, að vera í samstarfi við þann frábæra aðila sem Skógræktin er og þá hoppuðum við á þann vagn. En það er engin launung að þetta verður erfitt fyrir okkur fjárhagslega," segir skátahöfðinginn á Íslandi.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×