Harmageddon

5 bestu Eurovision-lögin sem unnu ekki undankeppnina á Íslandi

Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður og fleira.
Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður og fleira.
Botnleðja - Eurovísa

„Íslendingar hefðu getað sent frumlegasta atriði í sögu keppninnar og breytt henni þar með til frambúðar en kusu í staðinn að senda… æi, hver man eiginlega hvaða lag vann það árið? Sá sem man það getur allavega vottað fyrir að það var ömurlegt."

Eró-bikkjan - Hopp-abla-ha

„Frábært flippatriði með grípandi viðlagi sem hefði getað orðið okkar Diggiloo-Diggiley og/eða A-Ba-Ni-Bi."

Björgvin Halldórsson & Katla María - Sóley

„Þessi listi hefði alveg eins getað verið „Topp 5 Bó-lög sem ekki unnu undankeppni Eurovision", svo oft hefur verið litið framhjá meistaranum. Að þetta lag hafi lent í fjórða sæti í sinni undankeppni sýnir og sannar að það þarf að endurskoða lýðræðið (og stjórnarskrána!) á Íslandi."

Matti Matt & Erla Björg - Eldgos

„Þetta lag er fyrir fólk með athyglisbrest og það er nákvæmlega það sem hefði skilað okkur stigum hjá múgnum í Evrópu, auk þess sem það hefði loksins kennt fólki að bera fram EYJA FJALLA JÖKULL."

Magnús Kjartansson og Margrét Gauja.
Bræðrabandalagið - Sólarsamba

„Það besta sem Maggi Kjartans hefur gert síðan Trúbrot og þess vegna eitt af betri lögum Íslandssögunnar. „Sunny samba from Iceland". Auðvitað hefði Evrópa elskað það."



×