Lífið

Ásdís Rán og Garðar fögnuðu á Austur

[email protected] skrifar
Við lentum á mjög skemmtilegu borði á Austur. Þetta var rosa gaman. Ég fékk þennan fína pallettu kjól. Ég var svo hrifin af gullna litnum og ákvað að fagna nýja árinu með gullnu þema, segir Ásdís Rán spurð hvernig hún fagnaði komu nýs árs í gærkvöldi.

Baldur klipp var ræstur út til að gera nýársgreiðsluna mína. Hún var gerð með stæl eins og vanalega með fræga Hollywood Rod-krullujárninu sem ég nota svo mikið, segir Ásdís.

Hér má sjá myndir af Ásdísi, Garðari og vinum þeirra sem teknar voru á Austur í gær.

Ég toppaði svo lúkkið með því að skella á mig IceQueen-augnskuggum og meiköppi. Garðar var dressaður upp í æðislegan smóking og var alveg stórgæsilegur að vanda, segir hún áður en kvatt er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×