Jól

Smákökur sem nefnast Köllur

Karen Þórsteinsdóttir sendi jólavefnum uppskriftina sem lofar góðu.
Karen Þórsteinsdóttir sendi jólavefnum uppskriftina sem lofar góðu.

Þessar kökur líkjast Sörum, en heita Köllur, að sögn Karenar Þórsteinsdóttur sem sendi jólavefnum uppskriftina.

Innihald:

400 gr marsipan

100 gr flórsykur

100 gr sykur

100 gr kókósmjöl

5 stífþeyttar eggjahvítur

grænt pístasíu marsipan

dökkt gott hjúpsúkkulaði

Aðferð:

Eggjahvítur eru stífþeyttar með sykrinum, marsipan rifið útí og kókósmjölinu bætt við.

Sett með teskeið á bökunarplötuna (hafa bökunarpappír undir ). Bakað í 7 mín við 200°C. Kökurnar kældar, síðan er grænu pístasíu marsipani sprautað á botninn og honum dýft í dökkt súkkulaði.

Sendu okkur uppáhalds kökuuppskriftina þína á netfangið [email protected].






×