Landsvirkjun endurnýjar veltulán 28. desember 2011 07:00 Landsvirkjun Lánið er til þriggja ára og að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala. Þá er lánið með framlengingarheimild um tvö ár.Fréttablaðið/anton
Landsvirkjun hefur skrifað undir samning um nýtt sambankalán á alþjóðlegum bankamarkaði, hið fyrsta sem opinbert íslenskt fyrirtæki gerir frá bankahruni. Um er að ræða fjölmynta veltilán til þriggja ára að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir 24,6 milljörðum króna. Landsvirkjun getur dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum. Þá er lánið með framlengingarheimild um tvö ár. Með lántökunni hefur Landsvirkjun lokið endurfjármögnun á sams konar láni sem var á gjalddaga í desember 2012. „Þetta lán er ekki ætlað sem endurfjármögnunarlán heldur má eiginlega kalla það yfirdrátt. Það sem við erum að gera er að endurnýja okkar yfirdrátt," segir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, og bætir því við að lánið sé hugsað til að mæta skammtímasveiflum í lausafé eða þá sem neyðarúrræði ef markaðir lokast tímabundið. Um lántökuna sáu Barclays Capital, Citigroup og SEB en auk þeirra tóku þátt í láninu Arion banki, JP Morgan, UBS, Landsbankinn og Íslandsbanki. - mþl
Fréttir Mest lesið Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Fleiri fréttir Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Sjá meira