Lífið

Belgískur læknir með rokkveislu á Gauknum

Til vara
Til vara
Wim Van Hooste hefur fylgst með íslenskri tónlist síðustu 25 ár. Hann heldur upp á afmæli sitt á Gauknum á næsta ári.

„Ég komst ekki til Íslands í ár þannig að ég hlakka mikið til að koma á næsta ári,“ segir belgíski læknirinn Wim Van Hooste.

Van Hooste hefur gríðarlegan áhuga á íslenskri tónlist og heldur m.a. úti tónlistarblogginu Icelandicmusic.blogspot.com. Hann hyggst halda upp á 41 árs afmælið sitt á Íslandi á næsta ári, nánar tiltekið á Gauki á Stöng, og ætlar um leið að setja af stað sérstaka keppni þar sem hann leitar að bestu ábreiðunum af lögum úr heimildarmynd Friðriks Þórs, Rokk í Reykjavík.

„Á næsta ári verða 25 ár liðin frá því ég byrjaði að fylgjast með íslensku tónlistarsenunni,“ segir Van Hooste. „Það verða líka 30 ár frá því að Rokk í Reykjavík kom út. Mér fannst það vera áhugaverð hugmynd að heyra hljómsveitir dagsins í dag flytja gömul og klassísk lög úr myndinni.“

Lögin hyggst hann setja á netið og búa þannig til nokkurs konar Rokk í Reykjavík 2. Þá vonast hann til að þau geti einnig komið út á geisladiski.

„Bestu myndböndin verða svo sýnd í afmælinu mínu 24. maí á næsta ári,“ segir hann. „Og hljómsveitirnar með bestu ábreiðurnar verða beðnar um flytja lagið á sviði Gauksins.“

Wim Van Hooste er á meðal duglegri Íslandsvina. Hann reynir að heimsækja landið árlega og mætti til dæmis á sex Airwaves-hátíðir í röð ásamt því að hafa mætt tvisvar á Aldrei fór ég suður. „Ég bjó og starfaði á Akureyri fyrir rúmum áratug og fór þá einu sinni í mánuði til Reykjavíkur til að kíkja út á lífið,“ segir hann. „Þannig að ég hlakka mikið til að koma með föður mínum í maí og hitta góða vini. Ég vonast til að sjá bæði gamlar og góðar og nýjar íslenskar hljómsveitir á tónleikum.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×