Lífið

Ritstjórar verða fyrirsætur

Í sviðsljósinu
Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue (efst) prýðir forsíðu nýja breska tímaritsins, Industrie. Kate Lanphear ritstýrir tískuumfjöllun í breska Vogue en hún sat fyrir í auglýsingaherferð fyrir skartgripaframleiðanda. Ritstjóri japanska Vogue, Anna Dello Russo (t.h.) hefur gengið eftir tískupöllunum fyrir bæði Ungaro og H&M.
Í sviðsljósinu Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue (efst) prýðir forsíðu nýja breska tímaritsins, Industrie. Kate Lanphear ritstýrir tískuumfjöllun í breska Vogue en hún sat fyrir í auglýsingaherferð fyrir skartgripaframleiðanda. Ritstjóri japanska Vogue, Anna Dello Russo (t.h.) hefur gengið eftir tískupöllunum fyrir bæði Ungaro og H&M.
Hlutverkum hefur verið víxlað í tískuheiminum þar sem ritstjórar tískutímarita eru farnir að prýða forsíður og ganga niður tískupallana.

Hlutverk ritstjóra hinna ýmsu blaða og tímarita er meðal annars að velja forsíðufyrirsætur og fjalla um hvaða fyrirsætur tískuhúsin velja í auglýsingaherferðir. Nú hefur hlutverkunum verið víxlað, því allt í einu eru ritstjórarnir sjálfir komnir í hlutverk fyrirsæta. Á ljósmyndum, forsíðum og jafnvel á tískupöllunum.

Anna Dello Russo er fastagestur á síðum annarra blaða en hennar eigin, en hún er ritstjóri japanska Vogue. Dello Russo er fræg fyrir íburðarmikinn fatastíl og fékk H&M hana til að ganga tískupallinn fyrir Lanvin-sýningu sína í fyrra. Einnig hefur fataskápur hennar, sem í eru um fjögur þúsund pör af skóm, verið myndaður bak og fyrir af ljósmyndaranum fræga Juergen Teller fyrir W Magazine. Nú síðast sýndi Dello Russo sumarlínu fatamerkisins Ungaro á nýafstaðinni tískuviku í París.

Ritstjóri bandaríska Vogue, Anna Wintour, hefur einnig gerst sek um að prýða forsíður annarra blaða en hún er nú á forsíðu nýja breska tímaritsins Industrie þar sem einnig má sjá ritstjóra Love, Katie Grand, inni í blaðinu.

Kate Lanphear, tískuritstjóri breska Elle, er fyrirsætan í auglýsingaherferð skartgripaframleiðandans Eddie Borgo. Þessa þróun í tískuheiminum má líklega rekja til tískublogganna en daglega má þar sjá myndir af ritstjórum stærstu blaðanna með greinargóðri lýsingu á því hvaða merkjum þeir klæðast. Ritstjórarnir Carine Roitfeldt, Emmanuelle Alt hjá franska Vogue, Anna Wintour og Anna Dello Russo hafa tekið við sem tískufyrirmyndir og fyrirsætur dagsins í dag.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×