Viðskipti innlent

Frestað að skipta OR upp í tvö fyrirtæki

Orkukveitan Iðnaðarráðherra hefur orðið við beiðni eigendanefndar Orkuveitunnar og frestað aðskilnaði fyrirtækisins í sérleyfis- og samkeppnisstarfsemi.
fréttablaðið/pjetur
Orkukveitan Iðnaðarráðherra hefur orðið við beiðni eigendanefndar Orkuveitunnar og frestað aðskilnaði fyrirtækisins í sérleyfis- og samkeppnisstarfsemi. fréttablaðið/pjetur
katrín júlíusdóttir
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mælti í gær fyrir raforkulögum á Alþingi, en í þeim felst heimild til Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um að fresta því í tvö ár að skipta fyrirtækinu upp í samkeppnisstarfsemi annars vegar og sérleyfisstarfsemi hins vegar. Frestunin er að beiðni eigendanefndar OR.

Samkvæmt raforkulögum frá 2003 er kveðið á um aðskilnaðinn, en hann er samkvæmt tilskipunum frá Evrópusambandinu. Hitaveita Suðurnesja, Norðurorka og RARIK hafa öll skipt starfsemi sinni. Orkuveitan hefur ekki gert það, heldur fengið frest. Samkvæmt gildandi lögum átti breytingin að verða 1. janúar 2012, en verður ekki fyrr en 1. janúar 2014.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir lánasafn fyrirtækisins helstu ástæðu þess að beðið hafi verið um frestun á ný. Á haustdögum hafi vinna við skiptinguna hafist á ný, en mat eigendanefndarinnar hafi verið að of mikil áhætta fælist í því að keyra breytingarnar í gegn um áramótin.

„Fyrst og fremst vegna lánasafnsins okkar, sem er um 240 milljarðar, af ótta við það að einhvers konar vandamál gætu komið upp.“

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að sjálfsagt hafi verið að verða við beiðni um frestun. Fjármögnunarleiðir fyrirtækja séu viðkvæmar í dag vegna efnahagsástandsins á alþjóðavísu og best sé að rugga þeim bát ekki að óþörfu.

Dagur B. Eggertsson, formaður eigendanefndar OR, segir að um frestinn hafi verið beðið þar sem ekki þótti nægur tími til að koma breytingunum á fyrir áramót.

„Fyrri hluta þessa árs fór algjörlega í undirbúning og framkvæmd á neyðaráætluninni og uppskiptingarverkefnið tók þar við. Þetta hefur reynst aðeins flóknara en við bjuggumst við í uppphafi, ekki síst út frá skattalegum atriðum, en við þetta skiptast í raun upp bæði skuldbindingar og skuldir. Það ríður á, sérstaklega í stöðunni eins og hún er núna á alþjóðamörkuðum, að eiga gott samráð við alþjóðlega lánardrottna fyrirtækisins.“

[email protected]

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×