Lífið

Þorvaldur Davíð andlit nýja ilmsins frá Gyðju

Andlit vatnajökuls
Þorvaldur Davíð er andlit nýja ilmsins frá Gyðju Collection sem heitir eftir Vatnajökli.
Andlit vatnajökuls Þorvaldur Davíð er andlit nýja ilmsins frá Gyðju Collection sem heitir eftir Vatnajökli.
„Það er ómögulegt að segja til um hvaða áhrif þetta hefur á feril minn. En eitt veit ég þó að það er algengt að leikarar, erlendis, eru fengnir til að vera andlit fyrir ilmi og úr," segir leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

Þorvaldur Davíð er andlit herrailmsins VJK Vatnajökull frá tískumerkinu Gyðja Collection, en ilmurinn er væntanlegur í verslanir um helgina. Þorvaldur býr í Los Angeles um þessar mundir, en þangað flutti hann skömmu eftir að hann útskrifaðist úr Juilliard-listaháskólanum í New York í maí. Þetta er annað ilmvatnið frá Gyðju, en það fyrsta var dömuilmur unninn úr vatni Eyjafjallajökuls.

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Gyðju, segir Þorvald vera góða fyrirmynd og að það sé ein af ástæðunum fyrir því að hún falaðist eftir kröftum hans. „Þorvaldur er með flott íslenskt útlit ásamt því að vera afar hæfileikaríkur. Ég hef trú á honum og störfum hans," segir hún. „Þegar við hófum framleiðslu á herrailminum fóru í gang miklar pælingar með hvaða karlmaður yrði andlit ilmsins. En það var að sjálfsögðu mikilvægt að það væri íslenskur víkingur sem við teljum að geti borið nafn ilmsins, merkisins og jökulsins hátt á lofti hérlendis og erlendis."

Þorvaldur Davíð er staddur á landinu um þessar mundir og sinnir ýmsum verkefnum. Fáir, ef einhverjir, íslenskir leikarar hafa tekið að sér að vera andlit ilms og spurður hvað felst í því segist hann taka virkan þátt í kynningunni hérlendis og erlendis.

„Það er til dæmis verið að skipuleggja stóra kynningu á ilminum í Los Angeles í lok febrúar, vikuna fyrir Óskarsverðlaunahátíðina," segir hann. „Ég verð að sjálfsögðu viðstaddur og tek fullan þátt í því."

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×