Lífið

Stjörnurnar horfa til Íslands

Jake Gyllenhaal, Charlize Theron, Ridley Scott, Ben Stiller, Bon Jovi og Darren Ronofsky hafa öll dvalið á Íslandi á þessu ári.
Jake Gyllenhaal, Charlize Theron, Ridley Scott, Ben Stiller, Bon Jovi og Darren Ronofsky hafa öll dvalið á Íslandi á þessu ári.
Ridley Scott
Bandarískar kvikmyndastjörnur og leikstjórar hafa verið tíðir gestir á Íslandi á þessu ári. Fréttablaðið tók saman lista yfir fræga fólkið sem hefur heiðrað Íslendinga með nærveru sinni árið 2011.



Charlize Theron


Óvenjumargar bandarískar kvikmyndastjörnur og leikstjórar hafa komið hingað til lands á þessu ári. Flestar heimsóknirnar hafa verið í tengslum við kvikmyndatökur og hafa íslenskir fjölmiðlar fylgst spenntir með af hliðarlínunni.

Í apríl kom hingað Jake Gyllenhaal og eyddi einni helgi í aftakaveðri uppi á Eyjafjallajökli og Fimmvörðuhálsi í tökum fyrir sjónvarpsþáttaröðina Man Vs. Wild. Hann klæddi sig upp fyrir tökurnar í verslun 66 gráður norður í Bankastræti og fékk sér að borða á Laundromat í Austurstræti.

Ben Stiller
Í júlí flaug til Íslands stór hópur á vegum stórmyndarinnar Prometheus. Í tökuliðinu var leikstjórinn Ridley Scott, sem hefur gert myndir á borð við Alien og Gladiator, Michael Fassbender úr X-Men og leikkonurnar Charlize Theron og Noomi Rapace, sem sló í gegn í sænskum myndum byggðum á Millennium-bókunum. Tökurnar fóru fram meðal annars við rætur Heklu og þóttu takast einkar vel.

Jon Bon Jovi


Í ágúst greindi Fréttablaðið frá því að leikstjórinn Joseph Kosinski, sem síðast gerði Tron: Legacy með Jeff Bridges, hefði verið staddur hér á landi til að skoða hentuga tökustaði. Tilefnið var myndin Oblivion, með Tom Cruise í aðalhlutverki, sem segir frá hermanni sem er sendur til fjarlægrar plánetu.

Allt ætlaði um koll að keyra í september þegar fréttist af komu gamanleikarans Bens Stiller til landsins. Hann hefur í hyggju að taka upp myndina The Secret Life of Walter Mitty á Íslandi og kynnti sér tökustaði bæði á Djúpavogi og í Stykkishólmi. Stiller greindi frá ferðalagi sínu um landið á Twitter-síðu sinni og fylgdust aðdáendur hans úti um allan heim spenntir með. 

Darren Aronofsky


Annar Hollywood-leikari sem þó er þekktari sem rokksöngvari, Bon Jovi, kom hingað í júlí og dvaldi í turnsvítunni á Hótel Borg ásamt fjölskyldu sinni. Hann dvaldi hér í eina viku á meðan hann var að jafna sig eftir hnéaðgerð. Jovi og föruneyti skoðuðu Gullfoss, Geysi og Vestmannaeyjar ásamt því að ferðast vestur í Borgarfjörð.



Nú síðast greindi Fréttablaðið frá því að leikstjórinn Darren Aronofsky, sem hefur getið sér gott orð fyrir The Wrestler og Black Swan, hefði dvalið hér á landi til að kynna sér tökustaði fyrir væntanlega stórmynd um Nóa og örkina hans. Þar að auki hefjast tökur á sjónvarpsþáttaröðinni Game Of Thrones hér á landi í dag.

Stjörnurnar sem hafa komið til Íslands á þessu ári eru því margar og verður gaman að fylgjast með hvort framhald verði ekki á slíkum heimsóknum árið 2012.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×