Innlent

Ríkt fólk endurnýjar lúxusbílaflota landsins

Porsche Cayenne 2. kynslóð
Porsche Cayenne 2. kynslóð
Lexus RX400 jepplingur Lexus RX 400h tvinnbíll hybryd
„Þeir sem eiga peninga eru að kaupa bíla,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi.

Eins og fram hefur komið virðist bílasala vera að taka við sér eftir mögur ár í kjölfar hruns. Sala á lúxusbílum hefur aukist í ár miðað við síðasta ár og þá sérstaklega sala á lúxusjeppum. Dæmi eru um söluaukningu upp á 400 prósent á einstökum tegundum milli ára, þrátt fyrir að tæpir tveir mánuðir séu í áramót.

„Þeir sem eiga peninga kaupa dýrari bíla, kannski á tíu milljónir og meira. Þannig að við höfum verið að selja mjög mikið af Land Cruiser, sem er mest seldi bíllinn til einstaklinga,“ segir Páll. „Bílaleigurnar eru auðvitað stór hluti af markaðnum, en ef við skoðum einstaklinga þá hafa dýrari bílar verið að seljast. Fólk sem á pening kemur með gamla bílinn, setur hann upp í og staðgreiðir það sem vantar upp á. Það er mjög algengt.“

Sem dæmi þá hafa tíu Lexus RX450H-lúxusjeppar selst á þessu ári, en á síðasta ári seldust aðeins tveir. Hann kostar frá tólf milljónum króna. Annar lúxusjeppi í sama verðflokki, Volvo XC90, hefur selst 300 prósentum meira það sem af er ári, en allt árið í fyrra. Þrír seldust í fyrra en tólf hafa selst í ár. Lúxusjeppinn frá Porsche, hinn tignarlegi Cayenne, slær þó bæði Lexus og Volvo við.

22 slíkir hafa selst á þessu ári, en í fyrra seldust ellefu. Kóngurinn er þó ennþá Toyota Land Cruiser 150. 169 slíkir jeppar hafa selst í ár, en í fyrra seldust alls 122. Aukning er tæp 40 prósent. Mercedes Benz GLK kemur firnasterkur og nýr inn á lista. 24 slíkir hafa selst í ár.

Konungur góðærisáranna og góðkunningi útrásarvíkinganna, Range Rover, virðist ekki lengur eiga upp á pallborðið hjá þorra þeirra sem kaupa lúxusjeppa. Einn seldist í fyrra, en salan hefur þó tekið snarpan kipp í ár: þrír eru seldir.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×