Innlent

Fá tæpar 4 milljónir í bætur frá olíufélögum

Samráð olíufélaganna Olíufélögunum þremur var gert að greiða 1,5 milljarða króna í sekt fyrir níu ára langt verðsamráð árið 2005.
Samráð olíufélaganna Olíufélögunum þremur var gert að greiða 1,5 milljarða króna í sekt fyrir níu ára langt verðsamráð árið 2005.
Búið er að ganga frá samkomulagi á milli þriggja olíufélaga og hátt í hundrað einstaklinga sem lögðu fram kvartanir til Neytendasamtakanna (NS) þegar samkeppnisyfirvöld afhjúpuðu níu ára langt verðsamráð fyrirtækjanna árið 2005. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er upphæðin tæpar fjórar milljónir króna og skiptist jafnt á milli olíufélaganna Olís, Skeljungs og gamla Esso.

NS ákváðu í janúar árið 2005 að höfða mál fyrir hönd neytenda sem skiluðu inn nótum sem sönnuðu viðskipti þeirra við olíufélögin þrjú. Á þeim tíma voru ekki komin fram lög um hópmálsóknir og því hefur málið verið látið liggja í sex ár.

Hvert og eitt mál er metið stakt, en sé bótunum skipt jafnt á alla má gera ráð fyrir að hver og einn fái um 42.000 krónur. Bæturnar verða metnar eftir umfangi þeirra sannanna sem hver og einn lagði fram. Einstaklingarnir munu fá greiddar bæturnar með dráttarvöxtum sem reiknast frá því tímabili sem nóturnar segja til um.

Eina fordæmið í málinu er frá árinu 2007, þegar Ker hf., sem áður átti Esso, var dæmt til að greiða Sigurði Hreinssyni, trésmið frá Húsavík, 15 þúsund krónur í bætur með vöxtum. Málið byggði hann á bensínnótum frá árunum 1995 til 2001.

Hann krafði Ker um 180 þúsund krónur vegna bensíns sem hann hafði keypt hjá Esso á því tímabili, þar sem sannað var að olíufélögin höfðu með sér samráð.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×