Viðskipti innlent

Bein tenging krónu og evru verði skoðuð

forsetinn Gylfi Arnbjörnsson sagði líkur á að kaupmáttarforsendur kjarasamninga myndu standa, en reyna myndi á gengis- og verðlagsforsendur. Endurskoðun kjarasamninga fer fram í janúar.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
forsetinn Gylfi Arnbjörnsson sagði líkur á að kaupmáttarforsendur kjarasamninga myndu standa, en reyna myndi á gengis- og verðlagsforsendur. Endurskoðun kjarasamninga fer fram í janúar.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir stefnu í peninga- og verðlagsmálum vera lykilatriði í uppbyggingu atvinnulífs og endurheimt fyrri lífskjara. Hann vill skoða hvort fara eigi í milliliðalausar viðræður við forystumenn helstu ríkja Evrópu um styrkingu gjaldmiðilsins, jafnvel að tengja krónuna beint við evru.

Skoða þarf hvort stuðningur fæst frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og norrænu ríkjunum við slíka tengingu. „Þannig gæti almenningur og fyrirtæki fyrr notið þeirra vaxtalækkana og stöðugleika sem við þurfum á að halda,“ segir Gylfi.

Gylfi hélt ræðu á formannafundi ASÍ í gær. Þar sagði hann ýmislegt hafa áunnist eftir hrun. Tekist hefði að verja kaupmátt þeirra tekjulægstu og með kjarasamningum í vor hefði uppbygging kaupmáttar almennra launamanna hafist.

Mikilvægar réttarbætur hefðu náðst fyrir fólk í miklum greiðsluerfiðleikum og tekist hefði að verja viðkvæmustu hluta heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfisins, þótt óhjákvæmilegur niðurskurður hefði komið við alla landsmenn. Þá hefði, öfugt við þróun í öðrum löndum, tekist að lengja réttinn til atvinnuleysisbóta tímabundið í fjögur ár.

„Það sem ekki hefur tekist á þessari vegferð er að koma gangverki atvinnulífsins í gang, að skapa störf og auka tekjur okkar félagsmanna.“

Gylfi sagði allar líkur á því að kaupmáttarákvæði kjarasamninga næðust, en reyna myndi á gengis- og verðlagsforsendur.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hélt erindi á fundinum. Hún sagði fjölmargt hafa áunnist frá hruni og þar bæri hæst viðsnúning á ríkisfjármálum. Árið 2008 hefði verið 222 milljarða króna halli á ríkissjóði en á næsta ári yrði 40 milljarða króna afgangur. Þetta væri viðsnúningur upp á 260 milljarða sem hefði að mestu, eða 54 prósentum, náðst með samdrætti í útgjöldum.

Forsætisráðherra sagði risavaxin verkefni blasa við. Stærsta umbótaverkefnið fram undan væri umsókn að Evrópusambandinu. Þá væri mikilvægt að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu og tryggja það að þjóðin nyti arðs af auðlindum sínum.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×