Lífið

Plötusnúðar syngja í alvöru danspartýi

Taumlaus gleði „Við verðum með stærsta hljóðkerfið hans Óla ofur,“ segir Steindór Grétar sem er til vinstri á myndinni. Við hlið hans er látúnsbarkinn Alexander Briem.
Taumlaus gleði „Við verðum með stærsta hljóðkerfið hans Óla ofur,“ segir Steindór Grétar sem er til vinstri á myndinni. Við hlið hans er látúnsbarkinn Alexander Briem.
Fimmta Kanilkvöldið verður haldið á Faktorý í kvöld. Að þessu sinni er boðið upp á syngjandi plötusnúða.

„Drengurinn er algjör látúnsbarki. Hann syngur jafn vel og R. Kelly, Justin Timberlake og Stevie Nicks samanlagt. Sem er eins gott, því við flytjum meðal annars lög eftir þau í nýjum búningi,“ segir Steindór Grétar Jónsson um söngrödd Alexanders Briem, sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Gauragangi. Saman mynda þeir tvíeykið Lím Drím Tím – syngjandi plötusnúða, og munu skemmta á Kanilkvöldi á Faktorý, sem hefst á miðnætti í kvöld.

Sérstaða Lím Drím Tím er fólgin í því að spila eitt lag og syngja annað yfir. „Ég vil ekki nefna stærstu sprengjurnar okkar en við munum spila endurhljóðblöndu af laginu I Follow River með Lykke Ly og syngja yfir það Dreams með Fleetwood Mac, fólk ætti að þekkja það,“ segir Alexander og Steindór bætir við að sá eini sem vitað er til að hafi gert eitthvað svipað á Íslandi sé Erlend Øye úr hljómsveitinni Whitest Boy Alive, þegar hann var hér á landi fyrir nokkrum árum.

Þetta verður fimmta Kanilkvöldið en vinahópi drengjanna fannst skorta alvöru danspartý og tók því málið í sínar hendur. Dansveislan fer fram á efri hæð Faktorý og munu Kanilsnældurnar, B.G. Barregaard og Jón Eðvald kanilsnúður þeyta skífum ásamt drengjunum, sem lofa taumlausri gleði og trylltum dansi.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×