Innlent

Ráðherra efast um sjálfbærni hvalveiða

Stopp Engar langreyðar eru veiddar þetta sumarið og segir utanríkisráðherra það benda sterklega til þess að ekki sé markaður fyrir afurðirnar.Fréttablaðið/anton
Stopp Engar langreyðar eru veiddar þetta sumarið og segir utanríkisráðherra það benda sterklega til þess að ekki sé markaður fyrir afurðirnar.Fréttablaðið/anton
Össur Skarphéðinsson
Íslensk stjórnvöld mótmæltu aðgerðum bandarískra stjórnvalda vegna veiða á langreyði á fundi með bandaríska sendiherranum. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að efast megi um að langreyðaveiðar séu sjálfbærar á meðan ekki sé markaður fyrir afurðirnar.

„Við höfum alltaf sagt að við nýtum auðlindir okkar með sjálfbærum hætti. Það má draga í efa að við nýtum þær með sjálfbærum hætti ef við veiðum langreyði sem ekki er hægt að selja. Það hafa verið bornar brigður á að hægt sé að selja afurðirnar,“ segir Össur.

„Í mínum huga er engin spurning um að veiðar á hrefnu eru sjálfbærar, en í strangasta skilningi sjálfbærni er hægt að setja spurningarmerki við að langreyðarveiðarnar séu það.“

Hann segir að ekki verði betur séð en ekki sé hægt að selja afurðirnar nú, sem sé væntanlega ástæða þess að ekki sé verið að veiða stórhveli um þessar mundir.

Þrátt fyrir efasemdir um sjálfbærni stórhvelaveiða Íslendinga segist Össur hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með að vinaþjóð eins og Bandaríkin skuli hafa gripið til þeirra ráða að beita Ísland diplómatískum þvingunaraðgerðum vegna hvalveiða í atvinnuskyni, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær.

„Það veldur mér vonbrigðum að sjá þá skammsýni sem felst í því að ætla hugsanlega að láta þetta koma niður á samstarfi um norðurslóðir,“ segir Össur.

Hann segir að viðræður hafi staðið yfir við bandarísk stjórnvöld um samstarf sem þjónað hefði hagsmunum beggja þjóða.

„Það verður hver að fljúga eins og hann er fiðraður, það eru margar þjóðir sem vilja samstarf við Íslendinga um norðurslóðir. Við verðum þá bara að einbeita okkur að þeim, ef Bandaríkjamenn hafa ekki áhuga á að eiga við okkur samstarf,“ segir Össur. „Ég get nefnt Rússa, Kínverja, Norðmenn og fleiri.“ [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×