Innlent

Allt á uppleið eða í kaldakoli

Himinn og haf skildi að skoðanir stjórnarliða og stjórnarandstæðinga á því hvernig ástandið í íslensku efnahagslífi væri. Alþingi tók til starfa að nýju í gær.fréttablaðið/anton
Himinn og haf skildi að skoðanir stjórnarliða og stjórnarandstæðinga á því hvernig ástandið í íslensku efnahagslífi væri. Alþingi tók til starfa að nýju í gær.fréttablaðið/anton
Ætla mætti að stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar lifi ekki í sama samfélaginu, ef marka má umræður á Alþingi. Þing kom saman að nýju í gær og til umræðu var munnleg skýrsla forsætisráðherra um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum. Stjórnarliðar gerðu mikið úr þeim árangri sem náðst hefði í efnahagsmálum og vitnuðu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og erlendra, jafnt sem innlendra, álitsgjafa máli sínu til stuðnings.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gerðu mikið úr þeirri staðreynd að samstarfinu við AGS væri lokið og það sýndi ótvírætt að Ísland væri á réttri leið. Tiltóku þau ýmsar efnahagsstærðir máli sínu til stuðnings.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sjá hlutina ekki sömu augum og stjórnin en virðast sammála um að hér hafi flest farið á versta veg í tíð vinstristjórnarinnar. Þeir báru brigður á tölur stjórnarliða og vísuðu til mikils atvinnuleysis og fólksflótta máli sínu til stuðnings.

Bjarni sagði stjórnina ekki vera starfshæfa, hún nyti minnsta mögulega meirihluta á þingi, og aðeins um þriðjungur kjósenda styddi hana samkvæmt könnunum. „Það blasir við að það þarf að stokka spilin upp á nýtt og boða til kosninga. Við þurfum nýtt upphaf.“

Jóhanna svaraði því til að sömu kannanir sýndu að þjóðin treysti ekki stjórnarandstöðunni. „Það er ekki þannig að fólk vilji að stjórnarandstaðan taki við þjóðarbúinu. Það er eðlilegt því hún hefur engar lausnir í þessum málum.“

Steingrímur kallaði eftir því að menn viðurkenndu það sem vel hefði tekist og tækju höndum saman um að gera enn betur. Hann vísaði í nýlegt hlutabréfaútboð ríkisins, þegar ein milljón dala fékkst á alþjóðlegum mörkuðum. Þar væru komnir óvilhallir dómarar um íslenskt efnahagslíf. „Ekki eru þeir sem fjárfestu peninga sína þar á mála hjá ríkisstjórninni.“

Ef eitthvað er að marka þennan upphafsdag er ljóst að ekki er von á samstöðu á Alþingi um að vinna þjóðinni til heilla. Líklegra er að sama karpið um sömu leiðirnar verði á[email protected]


Tengdar fréttir

Þráinn stöðvaði stjórnkerfisbreytingar

Til stóð að allsherjarnefnd afgreiddi frumvarp um stjórnkerfisbreytingar í gær en til þess kom þó ekki. Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og þar með var ekki meirihluti fyrir því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×