Innlent

Sátt við ferlið en ekki niðurstöðuna

Vinstrihreyfingin – grænt framboð er á móti veru Íslands í Nató og lögðu þingmenn flokksins fram þingsályktunartillögu í maí um úrsögn úr bandalaginu. Samfylkingin vill Ísland áfram innan hernaðarbandalagsins.
fréttablaðið/valli
Vinstrihreyfingin – grænt framboð er á móti veru Íslands í Nató og lögðu þingmenn flokksins fram þingsályktunartillögu í maí um úrsögn úr bandalaginu. Samfylkingin vill Ísland áfram innan hernaðarbandalagsins. fréttablaðið/valli
katrín jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og formaður flokksráðsins, segir samþykkt ráðsins um helgina fyrst og fremst snúast um veru Íslendinga í Nató.

Líkt og komið hefur fram samþykkti flokksráðið ályktun þess efnis að rannsókn færi fram á aðdraganda þess að Ísland samþykkti stuðning við loftárásir Atlantshafsbandalagsins á Líbíu.

„Þetta snýst fyrst og fremst um að fara yfir veru okkar í Nató, en það liggur fyrir að við erum á móti henni, en einnig um ferlið í kringum þá aðild og það hvernig ákvarðanir eru teknar á þeim vettvangi,“ segir Katrín. Hún segir flest liggja fyrir varðandi aðdraganda stuðnings Íslendinga.

Árni Þór Sigurðsson, annar fulltrúa flokksins í utanríkismálanefnd Alþingis, tekur undir það. Hann segir engan vafa á því að Össur Skarphéðinsson utanríkis-ráðherra hafi tekið ákvörðun á réttum forsendum. Andstaða Vinstri grænna hafi legið fyrir, en ráðherrann haft þinglegan meirihluta að baki sér.

Árni Þór segir að mögulega skorti upplýsingar um hvernig málið bar að. „Við vorum bæði í ríkisstjórn og í þinginu sammála um að styðja stefnumótun Sameinuðu þjóðanna gagnvart stjórnvöldum í Líbíu.“ Árni Þór segir hins vegar að frá upphafi hafi flokkurinn verið á móti loftárásum Nató á landið.

„Það er hins vegar ekkert óljóst í þessu. Utanríkisráðherra ber stjórnskipulega ábyrgð á því að fastafulltrúi Íslands hjá Nató geri ekki athugasemd við loftárásirnar. Þá var hann búinn að kanna hug þingsins samkvæmt lögum og utanríkismálanefnd búin að fjalla um málið. Ákvörðunin hafði meirihlutastuðning á Alþingi.“

Árni Þór segir að þótt ferlið hafi verið rétt hafi flokkurinn verið ósammála niðurstöðunni. Össuri hafi verið ljóst að Vinstri græn gerðu athugasemdir, en hafi haft þinglegan meirihluta á bak við sig.

Spurður hvort andstaða Vinstri grænna gagnvart Nató þvælist fyrir þeim í ríkisstjórn minnir Árni Þór á að það sé ekki einsdæmi að flokkur á móti hernaðarbandalögum sitji í ríkisstjórn. Hins vegar megi velta því fyrir sér hvernig Ísland tekur afstöðu innan hernaðarbandalagsins á meðan það er þar.

[email protected]

árni þór sigurðsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×