Innlent

Umfjöllun fjölmiðla leiðir til rannsókna

Forstjóri Kauphallarinnar segir afar mikilvægt fyrir markaðinn að fjölmiðlar séu gagnrýnir. 
fréttablaðið/gva
Forstjóri Kauphallarinnar segir afar mikilvægt fyrir markaðinn að fjölmiðlar séu gagnrýnir. fréttablaðið/gva
Umfjöllun fjölmiðla um fjárhagsstöðu fyrirtækja og stofnana hefur verið kveikja að athugunum Kauphallar Íslands sem enda með fjársekt í um 40 prósentum tilvika, síðan í nóvember 2008.

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, kveður almennt aðhald fjölmiðla og ýmissa annarra óformlegra eftirlitsaðila vera afar áhrifamikið á markaðnum.

„Fjölmiðlar eru klárlega meðal mikilvægustu óformlegu eftirlitsaðila á markaði. Það er gríðarlega mikilvægt að þeir séu mjög gagnrýnir,“ segir Páll og bætir við að starfsmenn fyrirtækja og skortsalar séu einnig afar áhrifamiklir eftirlitsaðilar. Hann vitnar þar í nýlega bandaríska rannsókn sem gerð var á fjárhagslegu misferli stórra fyrirtækja og leiddi í ljós að formlegir eftirlitsaðilar voru sjaldnast ástæða þess að fjárhagslegt misferli komst upp.  „Það hefur verið mín afstaða, og okkar, að sérstaklega fyrir hrun hafi þetta verið veikleiki á markaðnum,“ segir Páll.

Í tíu skiptum af 26 er umfjöllun fjölmiðla gefin upp sem upphafleg ástæða Kauphallarinnar á að beita fyrirtæki févíti. Sektarupphæðir nema í flestum tilvikum 1,5 milljónum króna, en hæsta sektin var fjórar milljónir árið 2008, til Exista hf.

Eins og áður sagði hefur Kauphöllin sektað 26 sinnum síðan í nóvember 2008. Alls hafa 14 fyrirtæki verið beitt févíti, en sex þeirra hafa tvisvar verið sektuð og eitt, Bakkavör Group hf., í þrígang. Umfjöllun fjölmiðla var í öll þrjú skiptin kveikjan að athugunum Kauphallarinnar á fjárfestingarfélaginu.

„Þetta er í sjálfu sér mjög eðilegt og áhugavert. Oft á tíðum snúast þessi mál um jafnræði fjárfesta að upplýsingum. Þá er þetta dæmi um augljós brot á þeirri grundvallarreglu sem skráð félög eiga að hafa í heiðri,“ segir Pá[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×