Innlent

Sjómenn hafna frumvarpi

Umsagnir hagsmunaaðila um frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á kvótakerfinu hafa flestar verið neikvæðar, en af mjög mismunandi ástæðum.Fréttablaðið/GVA
Umsagnir hagsmunaaðila um frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á kvótakerfinu hafa flestar verið neikvæðar, en af mjög mismunandi ástæðum.Fréttablaðið/GVA
Fulltrúar sjómanna hafna þeim breytingum sem stjórnvöld áforma að gera á kvótakerfinu og vilja að frumvarpi sjávarútvegsráðherra, sem nú bíður umfjöllunar sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, verði vísað frá í heild sinni.

Þetta má lesa úr umsögnum Sjómannasambands Íslands og Landssambands smábátaeigenda til nefndarinnar.

„Almennt má segja um frumvarpið að með því sé verið að taka veiðiheimildir af þeim sem hafa atvinnu af sjómennsku og flytja til þeirra sem stunda sjómennsku í frítíma sínum eða til að auka veiðiheimildir smábáta,“ segir í umsögn Sjómannasambandsins.

Sambandið bendir á að skip hafi nú þegar í mörgum tilvikum ekki nægar aflaheimildir til að hægt sé að gera þau út allt árið. Þetta þýði að sjómenn á þeim skipum séu atvinnulausir þegar heimildirnar klárist.

„Það er óásættanlegt að sjómenn sem byggja lífsafkomu sína á sjómennsku þurfi að búa við það að kvótaaukningu sé ráðstafað til gæluverkefna stjórnvalda á meðan þeir eru atvinnulausir,“ segir í umsögn Sjómannasambandsins.

Þar er því einnig mótmælt að sjávarútvegsráðherra séu með frumvarpinu falin aukin völd við úthlutun fiskveiðiheimilda frá því sem nú sé. Þannig færi Alþingi vald sitt til framkvæmdarvaldsins með óeðlilegum hætti, sem sé í beinni andstöðu við þau sjónarmið sem meirihluti þjóðarinnar hafi látið í ljós í kjölfar bankahrunsins haustið 2008.

„Eins og ákvæðið lítur út í frumvarpinu hefur ráðherra nánast sjálfdæmi um að hygla ákveðnum útgerðarflokkum með lækkun á veiðigjaldinu án þess að þurfa að rökstyðja mál sitt sérstaklega,“ segir í umsögninni.

Í stuttri umsögn Landssambands smábátaeigenda er frumvarpinu einfaldlega hafnað. Stjórn sambandsins leggur til að sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd reyni að ná sátt við smábátaeigendur um breytingar á stjórnkerfi fiskveiða.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×