Innlent

Rétt viðbrögð vinnufélaga skiptu sköpum

Vestmannaeyjahöfn í gær Maðurinn var hífður upp úr lestinni og var þá kominn til meðvitundar. fréttablaðið/óskar
Vestmannaeyjahöfn í gær Maðurinn var hífður upp úr lestinni og var þá kominn til meðvitundar. fréttablaðið/óskar
Starfsmaður löndunarþjónustu var hætt kominn í gærmorgun þegar hann var við vinnu í uppsjávarveiðiskipinu Álsey VE. Hann missti meðvitund í lest skipsins en skjót viðbrögð vinnufélaga mannsins, skipverja og björgunarfólks skiptu sköpum.

Lögreglan í Vestmannaeyjum fékk tilkynningu um vinnuslys um borð í Álsey rétt fyrir klukkan ellefu. Starfsmaður sem var við löndun á makríl úr skipinu hafði misst meðvitund eftir stutta viðdvöl í lest skipsins.

Vinnufélagar mannsins brugðust skjótt við og komu neyðargrímu á meðvitundarlausan félaga sinn. Maðurinn komst fljótlega aftur til meðvitundar. Lögregla og slökkvilið höfðu mikinn viðbúnað og var maðurinn hífður upp úr lestinni og í land.

Vinnufélagi mannsins sem kom neyðargrímunni til hans hafnaði því alfarið að greina frá slysinu þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær og sagði það eitt skipta máli að félagi hans hefði sloppið heill.

Stefán Jónsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri í Vestmannaeyjum, segir engan vafa leika á því að skjót viðbrögð vinnufélaga mannsins hafi skipt sköpum. „Þetta fór betur en á horfðist. Félagar mannsins voru afar fljótir að bregðast við og komu til hans súrefni.“

Stefán segir eðlilegt að hafa mikinn viðbúnað við viðburð sem þennan. „Það er engin áhætta tekin við útkall eins og þetta.“

Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, segir að þrátt fyrir að um annað slysið á stuttum tíma sé að ræða þá megi ekki lesa mikið í það. Starfsmenn við löndunarþjónustu í Eyjum séu þaulvanir menn sem vita betur en aðrir hvaða hættur geti verið starfi þeirra samfara. Hér hafi verið um hreint óhapp að ræða sem ekki var hægt að afstýra. Eins sé allur búnaður við hendina ef óhöpp sem þessi verða.

Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja til aðhlynningar. Hann fékk að fara heim í gær eftir stutta dvöl á sjúkrahú[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×