Sendiherrann í Noregi: Það setur að okkur óhug við tíðindin 23. júlí 2011 00:01 Mynd/AP „
Það setur að okkur óhug við þessi miklu tíðindi. Þetta er í fyrsta skipti sem svo alvarlegt tilræði á sér stað í Noregi frá seinni heimsstyrjöldinni. Efst í huga okkar á þessari stundu er að ganga úr skugga um að engir Íslendingar hafi komið við sögu. Við munum hafa opið fram eftir svo lengi sem við teljum gagn að því," sagði Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Ósló, skömmu eftir hryðjuverkaárásina, í höfuðborg Noregs í gær. Sendiráð Íslands er í innan við eins kílómetra fjarlægð frá stjórnarráðshverfinu þar sem sprengt var. „Við erum svo gott sem við Karl Johan götu og sennilega eitt þeirra sendiráða sem eru allra næst." Gríðarlegur hvellur heyrðist í íslenska sendiráðinu, að sögn Gunnars. „Samstarfskona mín fann hvininn ganga í gegnum húsið. Sjálfur var ég staddur í bílageymslu neðanjarðar í um þriggja kílómetra fjarlægð frá vettvangi tilræðisins. Þar sem það hefur rignt mikið hugsaði ég með mér að bætt hefði í rigninguna og að það væru komnar þrumur." Embættisbústaður sendiherrans er á Bygdøy, að því er Gunnar greinir frá. „Það er í 2-3 kílómetra fjarlægð, eins og fuglinn flýgur, handan fjarðarins. Húsið okkar, sem er lítillega upphækkað, lék á reiðiskjálfi." Gunnar segir að samkvæmt manntali séu um þrjú þúsund Íslendingar búsettir í Ósló og næsta nágrenni. „Þeir gætu verið fleiri þar sem við höfum ekki nýjustu tölur."- ibs
Hryðjuverk í Útey Noregur Tengdar fréttir Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04 Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04 Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. 22. júlí 2011 21:41 Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38 Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32 Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. 22. júlí 2011 20:53 Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33 Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47 Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17 Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30 Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06 Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14 Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. 22. júlí 2011 23:20 Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56 Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22 Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51 Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19 Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50 Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. 22. júlí 2011 22:54 Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. 22. júlí 2011 22:07 Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Fleiri fréttir Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Séreign áfram leyfð inn á lán og ekkert kílómetragjald „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sjá meira
Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04
Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04
Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. 22. júlí 2011 21:41
Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38
Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32
Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. 22. júlí 2011 20:53
Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33
Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47
Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17
Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30
Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06
Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14
Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. 22. júlí 2011 23:20
Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56
Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22
Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51
Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19
Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50
Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. 22. júlí 2011 22:54
Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. 22. júlí 2011 22:07