Lífið

Eldhúsinu breytt í sjónvarpstúdíó fyrir Al Jazeera

úr stúdíóinu í eldhúsinu Guðný beið pollróleg í stofunni á Suður-Knarrartungu á meðan Siv Friðleifsdóttir útskýrði frumvarp sitt varðandi takmörkun á sölu tóbaks fyrir milljónum áhorfenda á Al Jazeera.
úr stúdíóinu í eldhúsinu Guðný beið pollróleg í stofunni á Suður-Knarrartungu á meðan Siv Friðleifsdóttir útskýrði frumvarp sitt varðandi takmörkun á sölu tóbaks fyrir milljónum áhorfenda á Al Jazeera.
„Hér í sveitinni hjálpast allir að. Hvort sem um er að ræða sauðburð eða sjónvarpsútsendingar,“ segir Guðný Heiðbjört Jakobsdóttir, bóndi í Suður-Knarrartungu í Snæfellsbæ.

Hún lenti í þeirri merkilegu lífreynslu á dögunum að eldhúsinu hennar var breytt í sjónvarpsstúdíó fyrir alþjóðlegu fréttastofuna Al Jazeera. Ástæðan var viðtal fréttastofunnar við þingkonuna Siv Friðleifsdóttur en hún er stödd í sveitinni í fríi.

„Systir Sivjar á heima hérna á næsta bæ og hafði samband við okkur því hún vissi að við værum nýkomin með samskiptaforritið Skype í tölvuna,“ segir Guðný. Al Jazeera fréttastofan hafði haft samband við Siv og vildi fá hana í viðtal vegna frumvarps hennar um að takmarka sölu tóbaks við apótek. Frumvarpið hefur vakið mikla athygli úti í heimi og fengið umfjöllun á hinum ýmsu fréttasíðum.

„Við vorum meira en til í að aðstoða Siv og vorum ekki lengi að koma tölvunni fyrir í góðri birtu þar sem besta sambandið er á bænum, í eldhúsinu. Svo sat ég bara inn í stofu og hafði hljótt um mig á meðan Siv var í viðtalinu og bóndinn var úti að slá. Allt saman mjög heimilislegt,“ segir Guðný glöð í bragði.

Fréttastofan Al Jazeera er meðal þeirra stærstu í heiminum og með áhorfendahóp í kringum 50 milljónir um allan heim. En hvað finnst Guðnýju um að milljónir áhorfenda hafi séð eldhúsið hennar í beinni útsendingu?

„Það er óneitanlega spes tilfinning þegar þetta er sett svona upp og ágætt fyrir ferilskrána. Það er líka sérstakt að hafa Al Jazeera á tengiliðalistanum á Skype núna. Hver veit hvenær við þurfum að hafa samband við fréttastofuna aftur,“ segir Guðný, sem þessa dagana er í miðjum heyskap.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×