Menning

Þjóðlögin vöktu mikinn áhuga

Kristín hefur ekki sungið plötuna Íslensk þjóðlög í heild á tónleikum áður.
Kristín hefur ekki sungið plötuna Íslensk þjóðlög í heild á tónleikum áður. Fréttablaðið/HAG
„Á þessum tónleikum okkar Gunnsteins Ólafssonar mun ég syngja og sextán manna hljómsveit leika þrettán lög sem ég söng inn á „long-play" plötu árið 1978," segir söngkonan Kristín Á. Ólafsdóttir um tónleika sem haldnir verða í Siglufjarðarkirkju í kvöld klukkan átta á Þjóðlagahátíð á Siglufirði. „Ég hef aldrei sungið öll þessi lög í heild á tónleikum áður."

Kristín safnaði saman lögunum þrettán á plötunni, sem ber heitið Íslensk þjóðlög. „Ég hafði mikinn áhuga á þjóðlögum eftir söngnám hjá Engel Lund, eða Göggu Lund eins og hún var kölluð. Þessi danska kona kenndi mér að meta íslensk þjóðlög," upplýsir Kristín sem fann þjóðlögin í bók séra Bjarna Þorsteinssonar, Íslensk þjóðlög, og segulbandasafni Ríkisútvarpsins.

Eftir að Kristín hafði safnað lögunum saman hafði hún samband við Svavar Gests, plötuútgefanda „Ég stakk upp á að við myndum biðja Atla Heimi Sveinsson um að útsetja lögin," segir Kristín og heldur áfram: „Þegar Atli var að útsetja hittumst við stundum og hann spilaði eiginlega alla hljómsveitina á píanóið heima hjá sér."

Kristín segir að Gunnsteinn Ólafsson, listrænn stjórnandi, hafi haft samband við hana eftir áramótin og beðið hana að syngja lögin af plötunni á Þjóðlagahátíð, sem hefst í dag og stendur fram á sunnudag. „Félagar úr Caput hópnum og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins spila með mér. Flautusnillingurinn okkar Kolbeinn Bjarnason verður í þessum hópi," útskýrir Kristín og nefnir að gítarleikarinn Kristján Edelstein verði einnig með. „Mér finnst skemmtilegt að hann er sonur fyrsta tónlistarkennarans míns, Stefáns Edelstein."

Ætlarðu sjálf á tónleika á Þjóðlagahátíð? „Já, ég ætla endilega að komast á tónleika og njóta þess sem er í boði. Mig langar meðal annars að lauma mér inn á fyrirlestra sem haldnir eru í Þjóðlagaakademíunni en þar er hægt að fræðast heilmikið um íslensku þjóðlögin."

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×