Innlent

Fyrirtækjarisi fjárfestir í íslensku vatni

Lindarvatn úr ölfusi rennur um allan heim Erlendir fjárfestar eiga orðið meira en helming í vatnsfyrirtækinu Icelandic Water Holdings, sem flytur út vatn á flöskum frá Hlíðarenda við Þorlákshöfn. Fréttablaðið/Anton
Lindarvatn úr ölfusi rennur um allan heim Erlendir fjárfestar eiga orðið meira en helming í vatnsfyrirtækinu Icelandic Water Holdings, sem flytur út vatn á flöskum frá Hlíðarenda við Þorlákshöfn. Fréttablaðið/Anton
„Nú er fyrirtækið að fullu fjármagnað, við getum gefið í og farið í markaðssetningu af krafti. Við höfum vaxið töluvert en nú getum við fylgt því eftir á myndarlegan hátt," segir Jón Ólafsson, stofnandi og stjórnarformaður Icelandic Water Holdings.

Fyrirtækið, sem selur átappað vatn á flöskum, hefur selt hlutafé fyrir samtals fimmtán milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 1,7 milljarða króna. Suður-afríska fyrirtækjasamstæðan Bidvest Group Limited kaupir megnið af nýju hlutafé fyrir 13,5 milljónir dala og eignast um 14,6 prósenta hlut í fyrirtækinu. Afgangurinn kemur frá núverandi hluthöfum. Bidvest hefur jafnframt rétt til að eignast allt að tuttugu prósent í vatnsfyrirtækinu innan árs. Brian Joffe, forstjóri Bidvest Group Limited, mun taka sæti í stjórn Icelandic Water Holdings.

Með kaupum Bidvest Group Limited nemur eignarhlutur erlendra fjárfesta í fyrirtækinu tæpum fimmtíu prósentum á móti Jóni sjálfum, syni hans og fleirum. Fyrr á árinu komu bandaríski fjárfestingabankinn JP Morgan og fleiri erlendir fjárfestar inn í hluthafahópinn þegar skuldum var breytt í hlutafé og nýtt hlutafé gefið út. Fyrir átti bandaríski drykkjarvörurisinn Anheuser Busch tuttugu prósenta hlut. Með fjárfestingu Bidvest fer hlutur Anheuser Busch niður í um átján prósent.

Jón segir að auk þess muni fjárfesting Bidvest Group Limited gera vatnsfyrirtækinu kleift að hefja markaðssetningu á fullu og mögulega opna því dyr inn á fjölda nýrra markaða, svo sem í Suður-Afríku, Hollandi, Bretlandi og Hong Kong.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×