Innlent

Vilja kjörna fulltrúa burt úr stjórn OR

orkuveita reykjavíkur Nefnd um eigendastefnu hefur skilað af sér drögum. Í henni áttu sæti fulltrúar meiri- og minnihluta í Reykjavík, auk fulltrúa Akraness og Borgarbyggðar. Dagur og Sóley eiga bæði sæti í nefndinni.fréttablaðið/róbert
orkuveita reykjavíkur Nefnd um eigendastefnu hefur skilað af sér drögum. Í henni áttu sæti fulltrúar meiri- og minnihluta í Reykjavík, auk fulltrúa Akraness og Borgarbyggðar. Dagur og Sóley eiga bæði sæti í nefndinni.fréttablaðið/róbert
dagur b. eggertsson
Skil verða á milli stjórnar og eigenda Orkuveitu Reykjavíkur (OR) verði hugmyndir meirihlutans í Reykjavík að veruleika. Vilji hans stendur til þess að kjörnir fulltrúir sitji ekki í stjórn OR heldur verði ráðið í hana eftir hæfni.

Þetta kemur fram í drögum að eigendastefnu fyrirtækisins sem unnið hefur verið að í tæpt ár. Drögin verða kynnt á ársfundi á fimmtudag, þeim fyrsta í sögu fyrirtækisins sem verður opinn, og liggja til umsagnar til 15. ágúst.

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir það skýra stefnu meirihlutans að koma pólitíkinni út úr fyrirtækinu. „Við viljum að pólitískar ákvarðanir séu teknar í sveitarstjórnum en fyrst og fremst eigi að velja stjórnarmenn á grundvelli hæfniskrafna, en ekki úr röðum sveitarstjórnarfólks.“

Dagur segir eigendastefnuna greina skýrar á milli eigendahlutverks sveitarstjórnafulltrúa, sem sé nátengt pólitískri stefnumótun, og hefðbundins hlutverks stjórnarmanna sem bera ábyrgð gagnvart fyrirtækinu. Hann vísar til fyrirtækis eins og Félagsbústaða hf., sem er í fullri eigu borgarinnar án þess að kjörnir fulltrúar eigi sæti í stjórn þess.

Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir grundvallarágreining um þetta atriði. Vinstri græn telji að í stjórn OR eigi að sitja kjörnir fulltrúar enda sé um mikið hagsmunamál umbjóðenda þeirra að ræða, ekki ólíkt ýmsum sviðum borgarinnar, svo sem menntasviði. Ábyrgð kjörinna fulltrúa liggi einnig í því að stýra fyrirtækjum borgarinnar, eins og OR, Strætó og Faxaflóahöfnum.

Þá segir Sóley að málefni gagnaveitunnar séu skilin eftir í drögunum og ekki vilji allir skilgreina hana sem kjarnastarfsemi. Flokkur hennar sé á móti sölu hennar til einkaaðila.

Dagur segir gagnaveituna vera hluta kjarnastarfseminnar en samkvæmt fimm ára áætlun verði skoðað hvort hægt sé að vinna að fjármögnun hennar eða sölu að öllu leyti eða hluta. OR sé í þess háttar stöðu að ekkert sé tryggt í því.

Dagur og Sóley eru sammála um að með eigendastefnunni sé stjórninni settar fastari skorður.

[email protected]

sóley tómasdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×