Lífið

Trier málar sig út í horn í Cannes

Tilraun Lars Von Trier til að gantast með nasisma, Adolf Hitler og Albert Speer misheppnaðist algjörlega og hefur honum verið vísað heim frá Cannes. Hann hefði betur haldið fyrir munninn á sér. Nordic Photos/Getty
Tilraun Lars Von Trier til að gantast með nasisma, Adolf Hitler og Albert Speer misheppnaðist algjörlega og hefur honum verið vísað heim frá Cannes. Hann hefði betur haldið fyrir munninn á sér. Nordic Photos/Getty
Danski leikstjórinn Lars von Trier hefur komið sér í rækileg vandræði með yfirlýsingum sínum um gyðinga, helförina og Adolf Hitler á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hann var rekinn af hátíðinni í hádeginu í gær.

 

Sænski leikarinn Stellan Skarsgaard kom leikstjóranum til varnar, sagði að þetta væri bara Trier. „Ég iða alltaf í skinninu yfir því að fara á blaðamannafund með Trier því þá gerist alltaf eitthvað spennandi, ólíkt öðrum blaðamannafundum sem yfirleitt eru hundleiðinlegir.“ Peter Aalbæk, framkvæmdastjóri Zentropa, var hins vegar ekki á sama máli og Skarsgaard, sagði ummæli leikstjórans hafa verið barnaleg og vitlaus. Undir það tók Henrik Bo Nielsen, framkvæmdastjóri danska kvikmyndasjóðsins. „Þetta var algjörlega út í hött af Trier að segja þetta.“

 

Trier reyndi að biðjast afsökunar á orðum sínum og dró þau til baka. Á blaðamannafundi með dönskum blaðamönnum sagðist hann vera meiri klámhundur en nasisti. „Ef ég hef sært einhvern með orðum mínum þá biðst ég innilegrar afsökunar. Ég hef ekkert á móti gyðingum, hef enga kynþáttafordóma og ég er ekki nasisti,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu Triers og framleiðslufyrirtækisins Zentropa.

En allt kom fyrir ekki. Orðin voru komin á kreik í heimspressunni og eftir krísufund hjá skipuleggjendum Cannes-hátíðarinnar var ákveðið að vísa Trier heim þótt mynd hans mætti enn vera í keppninni. Sölufyrirtæki voru þá þegar farin að rifta samningum við leikstjórann og eigandi veitingastaðarins Mouton Cadet neitaði að hýsa frumsýningarhófið hans. Ástæðan var mjög einföld: eigandinn var gyðingur.

 

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×