Innlent

Forsprakki vélhjólagengis í einangrun

Litla-Hraun Mennirnir sitja í gæsluvarðhaldi og einangrun á Litla-Hrauni.
Litla-Hraun Mennirnir sitja í gæsluvarðhaldi og einangrun á Litla-Hrauni.
Forsprakki vélhjólagengisins Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, situr nú í gæsluvarðhaldi og einangrun, ásamt öðrum meðlimi gengisins, Davíð Frey Rúnarssyni, eftir að þeir réðust á mann og héldu honum nauðugum í meira en hálfan sólarhring, að því er talið er. Þá hafa tveir meðlimir Black Pistons verið kærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á rannsókn málsins.

Ríkharð og Davíð Freyr voru handteknir í Hafnarfirði á miðvikudag eftir að lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Sá sem fyrir henni varð er karlmaður á þrítugsaldri.

Hann var með áverka víða á líkamanum og er meðal annars nefbrotinn. Talið er að barsmíðarnar hafi jafnvel farið fram á fleiri en einum stað. Sá sem ráðist var á er í tengslum við Black Pistons en er ekki fullgildur meðlimur. Á dvalarstað árásarmannanna, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, var lagt hald á bæði fíkniefni í neysluskömmmtum og ýmis barefli. Við aðgerðina í fyrradag naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Árásarmennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 20. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þeir hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Ríkharð hlaut tveggja ára fangelsisdóm haustið 2009 fyrir að hafa, í félagi við annan mann, kveikt í húsi við Kleppsveg þar sem maður var innandyra. Sá komst út við illan leik.

[email protected]


Tengdar fréttir

Óttast átök Black Pistons og Hells Angels

Black Pistons er stuðningsklúbbur Outlaws, sem eru ein stærstu vélhjólasamtök heims, og nær alls staðar skilgreind sem skipulögð glæpasamtök.

Við munum ekki líða neina vitleysu

„Við munum ekki líða neina vitleysu,“ segir Páll E. Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar, spurður um viðbrögð fangelsismálayfirvalda við því að vista nú tvo menn úr íslenska vélhjólagenginu Black Pistons í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×