Innlent

Styrkja á sáttaferlið í forræðisdeilum

Barnalög Breytingar á barnalögum eiga að styðja réttarstöðu barna.
Nordicphotos/getty
Barnalög Breytingar á barnalögum eiga að styðja réttarstöðu barna. Nordicphotos/getty
Í frumvarpi um breytingar á barnalögum sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mælti fyrir á Alþingi í gær er lögð áhersla á að styrkja sáttaferlið í þeim tilvikum sem foreldrar geta ekki komið sér saman um forræði.

Ekki á að heimila dómurum að skera úr um sameiginlega forsjá með dómi, að því er Ögmundur greinir frá.

„Sú leið var í frumvarpinu þegar það kom inn á mitt borð síðastliðið haust. Ég tók þá leið út með hliðsjón af því sem ég tel vera slæma reynslu annars staðar á Norðurlöndum hvað þetta snertir. Þar eru uppi ýmsar efasemdaraddir um ágæti þess fyrirkomulags. Danir eru til dæmis að leggja lokahönd á mikla úttekt um það mál.“

Ráðherrann segir það hafa sýnt sig að dómskerfið sé ekki alltaf í takt við veruleikann.

„Markmiðið sem við stefnum að er að tryggja rétt barnsins við foreldra sína og að sú umgengni verði í eins mikilli fjölskyldusátt og hægt er.“

Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á þingfundi í gær að þrátt fyrir aukna áherslu á sáttaleið myndu forræðismál engu að síður fara fyrir dómstóla. Hann benti á að rökstuðningurinn fyrir heimild dómara til að úrskurða sameiginlega forsjá væri ágætur í frumvarpinu.

„Það er þess vegna undrunarefni að ráðherra taki heimildina út.“

Innanríkisráðherra vísaði í rannsóknir annars staðar á Norðurlöndum og vaxandi efasemdir um að reynslan þar væri góð. Guðmundur kallaði þá eftir rannsókn á reynslu af þessum málum á Íslandi.

Ögmundur segir frumvarpið fela í sér grundvallaruppstokkun og endurmat á barnalögum. „Það byggir á vinnu sem hefur staðið sleitulaust frá haustinu 2008. Það má segja að grundvallarstefið í þessu frumvarpi sé að skoða allt umhverfið frá sjónarhóli barnsins og markmiðið er að styðja réttarstöðu barns í hvívetna enda er vísað í samþykktir Sameinuðu þjóðanna um þau efni.“

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var fullgiltur á Íslandi árið 1992. Hann hefur ekki verið lögfestur en Alþingi samþykkti árið 2009 þingsályktunartillögu þess efnis.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×