Innlent

Íbúar á Þórsgötu æfir vegna aðgerðaleysis borgarinnar

Húsið brann fyrir nokkrum árum síðan.
Húsið brann fyrir nokkrum árum síðan.
Íbúar á Þórsgötu 12 í Þingholtunum hafa ítrekað sent borgaryfirvöldum bréf vegna niðurnídds húss við Baldursgötu 32. Húsið er í eigu fasteignafélagsins Baldursgötu ehf. sem er jafnframt skráður eigandi fyrir Baldursgötu 34, sem er í útleigu.

Fyrirtækið hefur í tæpt ár verið beitt dagsektum af borgaryfirvöldum, sem eru nú komnar í innheimtu og skipta milljónum, samkvæmt upplýsingum frá byggingafulltrúa borgarinnar.

Baldursgata 32 hefur staðið auð í um það bil sex ár. Húsið brann árið 2008 og hefur ekkert verið gert til þess að endurbæta það.

Einar Logi Vignisson, íbúi á Þórsgötu 12, segir ólíðandi að borgaryfirvöld aðhafist ekkert í málinu. Hann segir mikla slysahættu og sjónmengun stafa af húsinu og ekkert hafi verið að gert, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli íbúa.

„Borgin hefur það alveg í hendi sér að rífa húsið og senda félaginu reikninginn. Það hlýtur bara að vera hægt,“ segir Einar.

Magnús Sædal Svavarsson, byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar, segir mál sem tengist mannvirkjum sem þessum flókin og ekkert eitt sé hægt að gera til þess að kippa þeim í liðinn. Verið sé að beita fyrirtækið Baldursgötu ehf. dagsektum, sem séu nú komnar í innheimtu. Fyrirtækið sé að brjóta ákvæði byggingareglugerðar með því að vera með mannvirki í niðurníðslu. Hins vegar geti yfirvöld líklega ekki rifið húsið að óbreyttu.

„Dagsektirnar eru málsmeðferð sem búið er að samþykkja. En ég held að [Baldursgata ehf.] sé komið í gjaldþrotameðferð, sem gerir það að verkum að veðin á húsinu færast yfir á lóðina, verði það rifið,“ segir Magnús.

„Þá standa fáar byggingar undir þeim kostnaði sem því fylgir.“

Gangi eigendur Baldursgötu ekki frá dagsektunum á næstunni fer eignin á uppboð.

„Það er sorgarsaga sem tengist svona mannvirkjum,“ segir Magnús. „Og það er nú komið að því að við fáum einhverja niðurstöðu í þetta mál.“

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×