Viðskipti innlent

Milljarðar undir hjá Sigurði Einarssyni

Sigurður Einarsson Tekist er á um milljarðalán Kaupþings til fyrrverandi stjórnarformanns bankans í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fréttablaðið/Valli
Sigurður Einarsson Tekist er á um milljarðalán Kaupþings til fyrrverandi stjórnarformanns bankans í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fréttablaðið/Valli
Tvö mál eru fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sem bæði tengjast Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings og lánveitingum bankans til hans. Í október 2008 hafði Sigurður Einarsson fengið 7,8 milljarða króna að láni hjá Kaupþingi.

Annað málið snýr að lánum sem starfsfólk Kaupþings, þar á meðal Sigurður, fékk til kaupa á hlutabréfum í bankanum. Stjórn Kaupþings aflétti persónulegri ábyrgð starfsmanna á lánunum 25. september 2008, fjórtán dögum áður en bankinn fór í þrot. Á þeim tíma námu heildarlánveitingar til æðstu stjórnenda bankans 64 milljörðum króna. Slitastjórn bankans rifti síðar ákvörðuninni en bauð þeim sem höfðu fengið lánin að endurgreiða stóran hluta þeirra eða semja um uppgjör.

Nokkrir fyrrverandi stjórnendur bankans sem hæst lán fengu neituðu að semja við slitastjórn um endurgreiðslu og fóru mál þeirra fyrir dómstóla. Slitastjórn Kaupþings krefst þess að Sigurður endurgreiði 579 milljónir króna af lánum sínum.

Stjórnarformaðurinn fyrrverandi krafðist frávísunar á málinu á þeirri forsendu að hann sé með lögheimili í Bretlandi. Úrskurðar um hvort hægt verði að flytja málið hér verður felldur 7. apríl næstkomandi. Fjögur sambærileg mál eru á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur og Héraðsdóms Reykjaness á næstu tveimur mánuðum, þar á meðal gegn Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi bankastjóra í Lúxemborg.

Þá verður fyrirtaka í lánamáli Arion banka gegn Sigurði í dag. Það fjallar um lán til hans til kaupa á hlut í fjárfestingarsjóðnum Kaupþing Capital Partners II Fund, sem hélt utan um fjárfestingar bankans í óskráðum bréfum.

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að The S Invest Trust, félag Sigurðar, hafi fengið tíu milljónir punda að láni til kaupa í sjóðnum. Það jafngildir rúmum 1,8 milljörðum króna á núvirði og er jafn há upphæð og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans, fékk að láni.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×