Innlent

Aðkoma NATO er í samræmi við stefnu

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að aðkoma Íslands að ákvörðun NATO um að taka við samræmingu aðgerða í Líbíu sé í fullu samræmi við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórnin hafi veitt formlegt samþykki á sínum tíma.

Forystumenn Vinstri grænna, þar á meðal Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, furðuðu sig á framvindu mála þar sem afstaða Íslands hefði ekki verið rædd í ríkisstjórn eða utanríkismálanefnd.

Steingrímur sagði aðspurður á þingi í gær að Vinstri græn styddu ekki ákvörðun NATO um að taka við stjórn aðgerða.

„Nei, við gerum það ekki enda vorum við ekki spurð.“

Hann bætti við að það eina sem rætt hefði verið í ríkisstjórn væri fyrrnefnd ályktun öryggisráðsins.

„Við töldum hana það skásta sem væri hægt að gera, enda haldi menn sig strangt innan þeirra heimilda sem þar er talað um, flugbann og aðgerðir til að reyna að verja líf óbreyttra borgara.“

Össur segir hins vegar að ákvörðunin í Norður-Atlantshafsráðinu á sunnudag hafi, eins og allar sem þar fari í gegn, verið tekin með þeim hætti að einungis sé kallað eftir mótatkvæðum.

„Við höfum aldrei barist fyrir því að NATO tæki yfir samræmingu á þessum aðgerðum,“ segir Össur. „En við gáfum til kynna í aðdragandanum að ef samstaða myndi nást myndum við ekki standa í vegi fyrir henni.“

Hann bætir því við að í raun geti aðkoma NATO tryggt að ályktun öryggisráðs sé fylgt í þaula.

„Einstök lönd sem höfðu þegar hafið aðgerðir höfðu, að mínu mati, farið út fyrir umboðið sem ályktun öryggisráðsins veitti og þess vegna tel ég að yfirtaka NATO á samræmingu aðgerða tryggi að þær verði algjörlega innan marka öryggisráðsins.“

Í samtali við Fréttablaðið átelur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í utanríkismálanefnd, málflutning Vinstri grænna í málinu.

„Það er tvískinnungsháttur að segjast vera á móti hernaðaraðgerðum þegar augljóst er að framfylgni ályktunar öryggisráðsins kallaði meðal annars á árásir á hernaðarskotmörk í Líbíu. Vinstri græn bera ábyrgð á stuðningi Íslands við ákvörðun NATO hvort sem þeim líkar betur eða verr.“

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×