Innlent

Samkeppnisbrotasektir 2,3 milljarðar á þremur árum - fréttaskýring

Húsleit Halldór Guðbjarnason forstjóri greinir fjölmiðlum frá viðbrögðum sínum við húsleit samkeppnisyfirvalda í Visa sumarið 2006. Í kjölfar hennar samdi fyrirtækið um að greiða 385 milljónir í stjórnvaldssekt.fréttablaðið/E.Ól.
Húsleit Halldór Guðbjarnason forstjóri greinir fjölmiðlum frá viðbrögðum sínum við húsleit samkeppnisyfirvalda í Visa sumarið 2006. Í kjölfar hennar samdi fyrirtækið um að greiða 385 milljónir í stjórnvaldssekt.fréttablaðið/E.Ól.
Hvaða fyrirtæki og samtök hafa orðið uppvís að brotum á samkeppnislögum á síðustu árum og hvað hafa þau greitt í sektir?

Fyrirtækjum og samtökum var gert, eða þau sömdu um, að greiða samtals rúmlega 2,3 milljarða króna vegna brota á samkeppnislögum á árunum 2008 til 2010.

Skipti, móðurfélag Símans og Tæknivara, greiddu hæstu einstöku sektina á þessu árabili, 400 milljónir vegna ólögmæts samráðs árið 2010. Árið áður var Símanum gert að greiða 150 milljónir í sekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.

Hagar hafa á hinn bóginn greitt hæstu samanlögðu fjárhæðina á árunum 2008 til 2010. Fyrstnefnda árið var fyrirtækið sektað um 315 milljónir vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu, um 20 milljónir 2009 vegna brots á banni við framkvæmd samruna og um 270 milljónir í fyrra vegna ólögmæts samráðs. Samtals hefur Högum því verið gert að greiða 605 milljónir vegna brota á samkeppnislögum á þessum þremur árum.

Hæsta sekt í einu máli varðaði brot stóru kortafyrirtækjanna sem samið var um lausn á 2008. Var þeim gert að greiða samtals 735 milljónir. Það er lægri fjárhæð en olíufélögin voru sektuð um vegna samráðsmáls þeirra. Sekt þeirra var í fyrstu ákveðin samtals 2,6 milljarðar en áfrýjunarnefnd lækkaði fjárhæðina í um einn og hálfan milljarð.

Á þessum þremur árum voru fimm samtök fundin sek um brot á samkeppnislögum. Það eru Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, Félag íslenskra stórkaupamanna (nú Félag atvinnurekenda), Bændasamtökin, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×